Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Vista
fjölbýlishús

Tjarnabakki 14 (204)

260 Reykjanesbær

57.900.000 kr.

541.121 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2278787

Fasteignamat

59.200.000 kr.

Brunabótamat

52.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
107 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 30. september 2026 kl. 17:45 til 18:15

Opið hús: Tjarnabakki 14, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 204. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 30. september 2026 milli kl. 17:45 og kl. 18:15.

Lýsing

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Tjarnabakki 14, íbúð 204, 260 Reykjanesbær

Íbúð á annarri hæð með sérinngangi, suðursvölum, bílskúr og þremur bílastæðum. Opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu myndar miðju eignarinnar og þaðan er útgengt á svalir með útsýni yfir sameiginlegt leiksvæði. Sér þvottahús er innan íbúðar og tvö bílastæði eru merkt eigninni auk stæðis fyrir framan bílskúr.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 107,0 m². Þar af er íbúðarrými 76,5 m², merkt 01-0204, og bílgeymsla 30,5 m², merkt 01-0107. Húsið er byggt árið 2006. Fastanúmer eignarinnar er F2278787. Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Svalir, merktar 01-0214, eru jafnframt skráðar en teljast ekki með birtu flatarmáli eignarinnar.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
er með fataskáp sem hefur verið málaður í dökkum lit. Flísar eru á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu alrými. Eldhús er með upprunalegri innréttingu. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með eigninni. Úr stofu er útgengt á suðursvalir með útsýni yfir sameiginlegt leiksvæði.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum.
Herbergi er í dag nýtt sem svefnherbergi og er með fataskáp sem hefur verið málaður í dökkum lit. Rýmið er skráð sem geymsla. Milliveggur milli þess og svefnherbergis hefur verið færður þannig að rýmið var stækkað.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, upphengdu salerni og hvítri innréttingu. Handklæðaofn hefur verið endurnýjaður.
Þvottahús er sér innan íbúðar með innréttingu og skolvaski. Þar er einnig lúga með stíga upp á geymsluloft. Flísar eru á gólfi.
Gólfefni eru upprunalegt viðarparket á meginrýmum og flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Fataskápar og innihurðir eignarinnar hafa verið máluð í dökkum lit.
Bílskúr er 30,5 m² að skráðri stærð. Þar er lakkað gólf, sjálfvirkur hurðaopnari og lítið milliloft.

Byggingarlýsing:
Húsið er steinsteypt tveggja hæða fjölbýlishús, byggt árið 2006, með léttu timburþaki. Útveggir eru steinaðir að utan og þak klætt stálklæðningu. Samkvæmt samþykktum uppdrætti er tvöfalt einangrunargler í húsinu.

Lóð og aðkoma:
Sameiginleg lóð er 3.282 m² leigulóð með leiksvæði. Tvö merkt bílastæði fylgja eigninni auk stæðis fyrir framan bílskúr.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
2025 - Svalahurð og handklæðaofn.
2024 - Stofugluggi endurnýjaður.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

img
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valný fasteignasala
Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone
img

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. sep. 2019
32.350.000 kr.
33.500.000 kr.
107 m²
313.084 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær