Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
112,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
Opið hús: 30. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Álalind 3, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 03 08. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 30. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Álalind 3,  112.8 fm 4 fjögurra herbergja vönduð endaíbúð merkt 03-08. Íbúðin er á 3.hæð í vönduðu álklæddu lyftuhúsi sem byggt var af SÉRVERK árið 2018. Rúmgott stæði í bílageymslu fylgir og þar er hleðslustöð fyrir rafbíl. Vandaðar innréttingar eru í íbúðinni, parket er á gólfum og flísar þar sem við á. Tvennar svalir í austur og yfirbyggðar svalir í vestur. Sérþvottahús með innréttingu þar sem þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð. Mjög gott útsýni er frá íbúðinni. Örstutt í fjölbreytta þjónustu bæði Smáralind og verslunarkjarnann í Lindum auk þess sem grunn og leikskólar eru í göngufæri. 
BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ ÞÓRARNI LÖGG FS Á THORARINN@EIGNAMIDLUN.IS EÐA Í SÍMA 899-1882
Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 236-2560, nánar tiltekið eign merkt 03-08.  Ibúðin er skráð 104,9 fm og sérgeymsla í sameign merkt 00-22 er skráð 7,9 fm. Birt heildarstærð er 112.8 fm Eigninni fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu merkt B-27. Svalir eru tvennar eru skráðar 4,5 fm (austanmegin) og 12,2 fm yfirbyggðar til vesturs. 

Eignin skiptist í forstofu/hol, þrjú svefnherbergi, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi og sérþvottahús. Að auki fylgir sérgeymsla í kjallara ásamt aðgangi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

SÉRINNGANGUR: Sérinngangur er af svalagangi og svalir liggja út frá forstofu.
FORSTOFA: Flísalögð forstofa með mjög góðu skápaplássi.
GANGUR: Rúmgóður gangur með parketi.
HERBERGI I: Hjónaherbergi með parketi og góðum skápum. 
HERBERGI II.
Herbergi með parketi og skápum. 
HERBERGI III: Herbergi með parketi og skápum. Möguleiki að fella niður lausa veggi og stækka alrýmið ef vill. 
ALRÝMI: Eldhús með fallegri innréttingu, innfelldri uppþvottavél og háfi yfir helluborði. Opið er yfir í stofu og borðstofu
STOFA/BORÐSTOFA: Parket er á gólfi. Úr stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir, 12,2 m², með mjög góðu útsýni.
BAÐHERBERGI: Flísalögð eru bæði gólf og veggir. Þar eru baðkar, sturtuklefi, vönduð innrétting, vegghengt salerni og handklæðaofn.
ÞVOTTAHÚS: Sérþvottahús með flísalögðu gólfi, handklæðaofn og innréttingu þar sem þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð.
BÍLASTÆÐI: Sérmerkt rúmgott bílastæði í bílageymslu með hleðslustöð fyrir rafbíl. 
SAMEIGN:
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Einnig fylgir sérgeymsla íbúðarinnar, sem er talsvert rúmgóð.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. mar. 2019
50.250.000 kr.
58.000.000 kr.
112.8 m²
514.184 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík