Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Sigurjón Rúnarsson
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Halla Vilbergsdóttir
Vista
einbýlishús

Langholt 13

230 Reykjanesbær

109.700.000 kr.

566.632 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2089764

Fasteignamat

89.950.000 kr.

Brunabótamat

88.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1964
svg
193,6 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 1. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Langholt 13, 230 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 1. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús við Langholt 13, 230 Reykjanesbæ.
Eignin er skráð 193,6 m², þar af er bílskúr 46,6 m².


Um er að ræða einstaklega vel við haldna og mikið endurnýjaða eign á eftirsóttum stað í Holtaskólahverfi. Fjölmargar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu á undanförnum árum og hefur eigninni verið vel við haldið. Á baklóðinni er skjólgóður og notalegur sælureitur með góðum sólpalli og heitum potti, með vinsælt útivistarsvæði í Vatnsholti í bakgarðinum.

Nánari upplýsingar veitir Elín Frímannsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 560-5521 / 867-4885 eða með tölvupósti á elin@allt.is.

Helstu endurbætur og kostir eignarinnar
Nýlegt þakjárn og þakpappi.
Eldhús nýlega endurnýjað með nýrri innréttingu, gólfefnum og eldhústækjum.
Gólfefni hafa verið endurnýjuð að stórum hluta.
Loft hafa verið sprautuð.
Nýjar innihurðar.
Þvottahús hefur verið fært aftast í húsið og þaðan er útgengt beint á baklóð og nýtist það sem áður var þvottahús sem fjórða svefnherbergið.
Ofnalagnir eru nýlegar og ofnar hafa verið endurnýjaðir að hluta. 
Skjólgóður sólpallur með heitum potti.
Sprunguviðgert og málað.
Afnotaréttur að um 360 m² landspildu að baki lóðarinnar sem liggur að útivistarsvæðinu í Vatnsholti.

Nánari lýsing eignar
Anddyri:
Flísalagt anddyri með mjög góðu skápaplássi.
Eldhús:
Bjart og fallegt eldhús sem hefur nýlega verið endurnýjað. Þar eru nýleg gólfefni, innrétting og eldhústæki.
Stofa og sjónvarpsrými:
Stór og björt stofa með parketi. Veggur hefur verið settur upp til að aðskilja stofu og sjónvarpsrými og skapast þannig tvö notaleg og fjölskylduvæn rými.
Baðherbergi:
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og búið sturtuklefa, vegghengdu salerni og handklæðaofni.
Svefnherbergi:
Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Þrjú barnaherbergi eru með parketi og hjónaherbergi er einnig parketlagt og með góðum fataskápum.
Gangur:
Gangur með góðu skápaplássi.
Þvottahús:
Rúmgott þvottahús með góðri innréttingu. Þaðan er útgengt beint á baklóð og góðan sólpall með heitum potti.
Bílskúr:
Rúmgóður bílskúr með rafdrifnum hurðaopnara. Innst í bílskúrnum er herbergi/geymsla sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Lóð og umhverfi
Baklóðin er einstaklega notaleg og þar hefur verið útbúinn skjólgóður sælureitur með góðum sólpalli og heitum potti - tilvalinn staður til að njóta góðra stunda.
Eigninni fylgir jafnframt afnotaréttur að um 360 m² landspildu að baki lóðarinnar sem liggur að útivistarsvæðinu í Vatnsholti. Þessi staðsetning veitir eigninni skemmtilega tengingu við gróið og fjölskylduvænt útivistarsvæði.
Staðsetningin hentar einstaklega vel fjölskyldufólki en stutt er í skóla, þjónustu og fjölbreytta útivist. Fyrirhugað er að þróa Vatnsholtið áfram sem skógi vaxið útivistarsvæði með áherslu á gott aðgengi og aðstöðu til samveru, leikja og hvíldar. Samkvæmt fyrirliggjandi áformum verður meðal annars unnið að bættum göngustígum, fleiri áningar- og samverusvæðum, betri lýsingu og umhirðu skógarins, með það að markmiði að varðveita náttúrulegt yfirbragð svæðisins.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

img
Elín Frímannsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone
img

Elín Frímannsdóttir

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. okt. 2020
51.200.000 kr.
59.500.000 kr.
193.6 m²
307.335 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone

Elín Frímannsdóttir