Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Vista
fjölbýlishús

Tjarnarból 14

170 Seltjarnarnes

72.900.000 kr.

798.467 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2068449

Fasteignamat

69.600.000 kr.

Brunabótamat

46.630.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1972
svg
91,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 28. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Tjarnarból 14, 170 Seltjarnarnes, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 28. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

Afar rúmgóð og björt tveggja herbergja íbúð ásamt bílskúr.  Íbúðin hefur verið fallega endurnýjuð að innan svo sem skipt um eldhús og gólfefni. Heildarstærð eignar er 91, 3 fm, þar af er frístandandi bílskúr í bílskúrslengju 21,3 fm. Íbúðin er á 2. hæð í 4. hæða fjölbýlishúsi með 17 íbúðum. Sameiginlegur inngangur, stigahús er mjög snyrtilegt og vítt milli veggja. Húsið og lóðin eru mjög snyrtileg.
Framan við húsið eru sameiginleg bílstæði, sérstæði er framan bílskúrs. Sameiginleg gróin lóð er með hellulögðum göngustíg. Öll þjónusta og verslanir eru í göngufæri


Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott og tengir saman flest rými íbúðarinnar.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum.  Gengið er þar út á langar og rúmgóðar svalir sem liggja meðfram allri íbúðinni. Stálhandrið á svölum og viðarplattar á svalagólfi.
Eldhús: Falleg og nýleg innrétting sem liggur í L eftir tveimur veggjum. Virkilega stórt og gott eldhús sem er opið að hluta inn að stofu sem myndar skemmtilegt og rúmgott rými. 
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi sem flísalagt að hluta. Sturtuklefi og hvít innrétting með handlaug. 
Herbergi: Rúmgott herbergi, hol er fyrir framan herbergi þar sem möguleiki er að gera vinnuaðstöðu eða setja góða fataskápa. 
Sérgeymsla: Er á jarðhæð á geymslugangi. Geymslan er stór og rúmgóð.

Bílskúr: Er í frístandandi bílskúrsbyggingu. Hitaveita, rafmagn, kalt og heitt vatn. Um er að ræða endaskúr sem er næst inngangi. 

Sameign:
Þvottaherbergi: Rúmgott, staðsett á hæð íbúðar. Er sameign íbúða á hæðinni sem eru fimm. Hver íbúð er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi og mjög snyrtilegt.
Hjóla og vagnageymsla: Er á jarðhæð. Sérútidyrahurð.
Önnur sameignarrými; Geymsla húsfélags (16,5 fm) , hitaherbergi (17,8 fm), stigahús, gangar og þakrými (sjá nánar eignaskiptayfirlýsingu).

Framkvæmdir samkvæmt eiganda:
2016 - Þak yfirfarið og skipt um þakpappa (ca. 2016)
2019 - Neysluvatnslagnir endurnýjaðar
2020 - Nýr Varmaskiptir/Forhitari
2021-2022 - Sprunguviðgerðir og framkvæmdir vegna leka
2021-2024 - Gluggar endurnýjaðir á Austur, Norður og Vestur hlið. Búið að endurnýja 2-3 glugga Suður hlið.
2025 - Nýr Varmaskiptir/Forhitari

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

img
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan Garður
Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
img

Halldór Freyr Sveinbjörnsson

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. okt. 2014
22.100.000 kr.
25.500.000 kr.
91.3 m²
279.299 kr.
21. okt. 2010
18.750.000 kr.
15.800.000 kr.
91.3 m²
173.056 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður

Halldór Freyr Sveinbjörnsson

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður