Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
einbýlishús

Tjarnarhraun Byggðarhorn

801 Selfoss

92.500.000 kr.

620.805 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2340825

Fasteignamat

78.950.000 kr.

Brunabótamat

86.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
149 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Snyrtilegt 5-6 herb., 149fm einbýlishús á 1,25ha eignarlóð í búgarðabyggðinni í Byggðarhorni.
Heimilt samkvæmt skipulagi að bæta við bílskúr og skemmu eða útihúsi tengt frístundabúskap, stutt á Selfoss.


Komið er inn í rúmgóða, flísalagða forstofu með fataskápum.
Forstofuherbergi með fataskáp þar við hliðina, vínilparket á gólfi þess eins og öðrum gólfum hússins nema votrýmum, flísar á þeim.
Inni er svo sameiginlegt opið rými stofu og eldhúss auk sjónvarpshols þar við sem vel mætti nýta sem 5.svefnherbergið með því að setja hurð þar fyrir. 
Stofan er björt, með gluggum niðurundir gólf á þrjá vegu og gengt út á pall í skjólsælu horni við húsið. Eldhúsið vel búið tækjum frá SIEMENS og innréttingu frá IKEA. 
Herbergjagangur með baðherbergi og þremur rúmgóðum svefnherbergjum, fataskápar í einu þeirra.  
Baðherbergið með sturtu með glerþili, handklæðaofni, upphengdu klósetti og vaski á stórum skúffuskáp og spegilskápur yfir. Flísar á gólfi og sturtuveggnum. 
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu, gengt út.
Að utan er húsið klætt með liggjandi lituðu bárujárni sem og þakið, gluggar eru ál/tré og hurðir úr tré.
Kominn pallur við stofu og jarðvegsmön þar á bak við húsið til skjóls, en dálitlar grasflatir framan við húsið við bílastæðið sem er malarborið. 
Lóðin að öðru leiti mikið til ósnortin.
Aðeins 5mín. akstur á Selfoss í alla þjónustu.
Frábært tækifæri til að eignast gott hús í sveitasælunni í Flóanum.

- - VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN - - 

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

img
Loftur Erlingsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
img

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. mar. 2023
55.450.000 kr.
69.400.000 kr.
149 m²
465.772 kr.
12. jún. 2020
6.530.000 kr.
66.200.000 kr.
224.3 m²
295.140 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum