Opið hús Straumsölum 2 íbúð 302.
Lýsing
Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott og flísalagt með góðum skápum.
Stofa: Mjög stór og björt með parketi á gólfi, útgengt á stórar svalir, fallegt útsýni.
Hol: Gott rými opið við stofu, getur nýst sem sjónvarpshol.
Eldhús: Stór snyrtileg innrétting, góð tæki og borðkrókur, stúkað frá stofu með léttum vegg.
Þrjú svefnherbergi: Öll rúmgóð og fín með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt, ljós innrétting, sturta og baðkar, gluggi á baðherberginu.
Þvottahús: Sér innan íbúðar, fín innrétting og skolvaskur..
Sameign: Í snyrtilegri sameign er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Bílskúr: Fullbúinn með flísum og opnara, gert ráð fyrir geymslu innaf bílskúr.
Húsið: Húsið er einangrað og klætt að utan og því viðhaldslétt, ekki eru fyrirhugaðar stærri framkvæmdir.
Þetta er björt og falleg fjölskylduíbúð í barnvænu hverfi í göngufæri við Salaskóla, leikskóla, Salalaug, líkamsrækt, íþróttasvæði ásamt verslun og þjónustu.
Allar upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Viltu stækka eða minnka við þig ? - ekki hika við að hafa samband.
Er m.a með viðskiptavini á skrá sem leitast við að stækka eða minnka við sig í 201 og 203 Kópavogi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.