Upplýsingar
Byggt 1983
110,9 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 30. september 2026
kl. 18:00
til 18:30
Opið hús: Aðalland 6, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 30. september 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög rúmgóð og björt 110,9 fm 4-5 herbergja íbúð á 1. hæð við Aðalland 6 í Fossvogi. Húsið var byggt árið 1983 og eru 5 íbúðir í húsinu. Íbúðin skiptist m.a. í samliggjandi stofu og borðstofu, eldhús, þrjú herbergi og baðherbergi. Skv. teikningu eru fjögur svefnherbergi í íbúðinni. Fjórða svefnherbergið er nú opið og hluti af stofunni, en hægt að breyta því til baka. Frá íbúðinni er gengið út í garð á hellulagða verönd til suðurs. Sér geymsla er á 1. hæð. Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.Nánari uppl. veitir: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Forstofa/gangur: Parketlögð forstofa með skápum.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi stofa og borðstofa sem snúa til suðurs. Bjartar stofur með stórum gluggum. Gólf er parketlagt. Gengið er út á verönd úr stofu. Önnur stofan er herbergi samkvæmt teikningu en auðvelt væri að breyta því aftur.
Eldhús: Mjög rúmgott eldhús. Upprunaleg ljós innrétting er í eldhús. Stór borðkrókur. Gólf er korklagt.
Hjónaherbergi: Góðir skápar sem ná upp í loft eru í hjónaherbergi. Gólf er korklagt. Gengið er út á verönd til suðurs.
Herbergi 1: Gólf á herbergi er korklagt.
Herbergi 2: Herbergið er innst á gangi og með gluggum í tvær áttir. Gólf er korklagt.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með baðkari og sturtuklefa. Góðir skápar. Gólf er flísalagt. Gluggi er á baðherbergi.
Geymsla: Sér geymsla með hillum er á 1. hæð.
Framkvæmdir:
Fyrir um 10 árum síðan var húsið viðgert og hraunað og skipt um járn á þaki. Árið 2025 var þakið yfirfarið.
Mjög góð staðsetning á skjólsælum stað. Stutt í verslanir og helstu þjónustu. Í Fossvogsdalnum er fallegt útivistarsvæði með gönguleiðum.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook