Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Vista
svg

202

svg

185  Skoðendur

svg

Skráð  28. sep. 2026

fjölbýlishús

Hávegur 2

200 Kópavogur

78.900.000 kr.

981.343 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2522774

Fasteignamat

71.300.000 kr.

Brunabótamat

59.490.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
80,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

DIGRANES – HÁVEGUR 4, ÍBÚÐ 03-03, 200 KÓPAVOGI. Glæsileg og vönduð 80,4 fm 3ja herbergja íbúð í nýju lyftuhúsi við Digranes í Kópavogi. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, rúmgóðu og björtu alrými, vönduðu eldhúsi og baðherbergi. Sérgeymsla í sameign og sérmerkt stæði í bílageymslu, B-119, fylgja íbúðinni. Möguleiki er á kaupum á aukastæði í bílageymslu. EIGNIN ER TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING – FULLBÚIN ÁN MEGINGÓLFEFNA.
Bókið skoðun – við sýnum samdægurs.  Daði – sími 824-9096 - Hilmar – sími 824-9098 - Þórarinn – sími 899-1882
ATH. UM MYNDIR: Innimyndir eru úr sambærilegri íbúð, Skólatröð 6, íbúð 213. Myndir með gólfefnum og húsgögnum eru unnar með myndvinnslu og eru ætlaðar til að sýna mögulega útfærslu eignarinnar. Litir og áferð innréttinga geta því vikið lítillega frá raunveruleikanum.
Heimasíða verkefnisins: www.digranes.is .      SJÁ NÁNAR UM EIGNINA Í SKILALÝSINGU.       SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT 
Nánari upplýsingar um eignina er að finna í skilalýsingu og söluyfirliti.
UM ÍBÚÐINA: Íbúð 03-03 er 80,4 fm, 3ja herbergja íbúð með tveimur svefnherbergjum, eldhúsi og stofu í björtu alrými og vönduðu baðherbergi, sérgeymslu og stæði í bílageymslu.
Anddyri gangur er 8,4 fm. Herbergi I er 14,9 fm og með góðum skápum. Herbergi II er 8,2 fm. Alrými er 27,1 fm með stofu og eldhúsi.
Eldhúsið er með sérsmíðuðum innréttingum frá Selós, góðu skápa- og skúffuplássi og vönduðum steinborðplötum. Innbyggður kæli-/frystiskápur og uppþvottavél fylgja ásamt spanhelluborði. Heimilistæki eru frá AEG.
Baðherbergi er vandað og flísalagt 5,9 fm. Gólfhiti er á baðherbergi auk handklæðaofns og þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Svalir eru út frá alrými til suðurs og skráðar 6,4 fm.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign. Innangengt er í bílakjallara þar sem íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði B-119.
INNRÉTTINGAR OG FRÁGANGUR: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Selós og skápar úr vönduðu og slitsterku melamínefni. Heimilistæki eru frá AEG. Kæli-/frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð og spanhelluborð fylgir.
Dekton Rem steinborðplötur eru í eldhúsum og Silestone Nolita steinborðplötur á baðherbergjum.
Baðherbergi og þvottahús, þar sem þau eru sér, eru flísalögð með Limestone MGM 60 × 60 cm flísum frá Ebson, á gólfum og veggjum að hluta.
Íbúðirnar eru með hefðbundnu ofnakerfi auk jafnvægisstillts loftræsikerfis með varmaendurvinnslu sem stuðlar að góðum loftgæðum.
DIGRANES – VÖNDUÐ NÝBYGGING Í KÓPAVOGI: JÁVERK ehf. byggir á Digranessvæðinu glæsilegar og vel skipulagðar íbúðir þar sem lögð er áhersla á vandaða hönnun, góð efnisgæði og nútímalegar lausnir. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án megingólfefna og með vönduðum innréttingum og tækjum.
Bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og möguleiki er á að kaupa viðbótarstæði. 
GARÐUR OG UMHVERFI: Sameiginlegur inngarður er skjólgóður og vel hannaður með gróðri, leiktækjum og dvalarsvæðum. Digranes er einstaklega vel staðsett svæði í Kópavogi með góðar samgöngur og stutt í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.
SVANSVOTTUN: Mjög er vandað til framkvæmdarinnar og byggingarefni og framkvæmdir miðast við kröfur Svansins.Nánar um Svansvottun, sjá hér
AFHENDING: Til afhendingar við kaupsamning – fullbúin án megingólfefna.
SKIPULAGSGJALD: Kaupendur greiða skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það verður innheimt.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík