Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðbjörg Heimisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Sambyggð 10 íbúð 0102

815 Þorlákshöfn

49.400.000 kr.

583.235 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2212712

Fasteignamat

40.200.000 kr.

Brunabótamat

41.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1978
svg
84,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Sambyggð 10, íbúð 0102, Þorlákshöfn.  Mikið endurnýjuð 78m2 íbúð á jarðhæð ásamt 6,6m2 sér geymslu sem og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.   Sérafnotaflötur er í hásuður. 

Húsið hefur fengið gott viðhald: 
Búið er að klæða húsið að utan, skipta um járn á þaki, gler og glugga,  endurnýja affallslögn og heitavatnslögn.  Auk þess sem búið er að yfirfara neysluvatnslagnir og hreinsa og fóðra.  Rafmagn hefur verið endurnýjað og skipt hefur verið um ofnaloka. 


*  Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *

Íbúðin telur:
*  Rúmgott anddyri með nýlegum flísum á gólfi og nýlegum fataskáp.
*  Stóra og bjarta stofu þaðan sem utangengt er á sérafnotaflöt í há suður.   Nýlegt harðparket er á gólfi.
*  2 rúmgóð svefnherbergi með nýlegu harðparketi á gólfi.  Nýlegir fataskápar eru í báðum herbergjum.
*  Eldhús með nýlegri innréttingu, góðum borðkrók og nýlegum flísum á gólfi. 
*  Endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu og sturtuklefa.


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super1 pizza
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is og á www.hamingjuhofn.is


  

Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. apr. 2017
11.450.000 kr.
16.900.000 kr.
84.7 m²
199.528 kr.
29. sep. 2016
11.700.000 kr.
10.000.000 kr.
84.7 m²
118.064 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone