Upplýsingar
Byggt 2025
103,1 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
DIGRANES: HÁVEGUR 2, ÍBÚÐ 02-04. Mjög vönduð 103.1 fm 4 herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi. Sérgeymsla í sameign og sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum og möguleiki er að kaupa aukastæði í bílageymslu. HEIMASÍÐA SMELLIÐ HÉR *TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING *Bókið skoðun sýnum samdægurs !ATH. UM MYNDIR: *Myndir með gólfefnum og húsgögnum eru unnar með myndvinnslu og eru ætlaðar til að sýna mögulega útfærslu eignarinnar. Litir og áferð innréttinga geta því vikið lítillega frá raunveruleikanum.
Nánar: Íbúð merkt 02-04 er með 3 svefnherbergjum,eldhúsi, stofu og baðherbergi. Sérþvottahús. Geymsla í sameign fylgir. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara merkt B-121.
ÍBÚÐIN: FORSTOFA/GANGUR: Forstofa með góðum skápum 4,1 fm. # SÉRÞVOTTAHÚS: með flísalögðu gólfi, 4,0 fm. # BAÐHERBERGI: Baðherbergi er flísalagt vönduðum flísum bæði gólf og veggir, 5,6 fm. Innrétting með góðum skúffum og efri glerskáp með góðri lýsingu, Steinn á borðum. "walk in" sturta með glerskilrúmi. #HERBERGI I: Hjónaherbergi með góðum skápum, 14,6 fm. # HERBERGI II: Herbergi, 7,1 fm. # HERBERGI III: Rúmgott herbergi, 8,7 fm. # ALRÝMI: Vandað eldhús með miklu skápa og skúffuplássi, eldaeyja, steinn á borðum. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél fylgja. Opið yfir í rúmgóða STOFU og gengið út á stórar suðurvalir og úr hjónaherbergi eru litlar norðursvalir, samtals 31,0 fm # Í SAMEIGN ERU: Sérgeymsla íbúðarinnar , sameiginleg hjóla og vagnageymsla og innangengt í bílakjallara þar sem íbúðin á sérbílastæði.
ATH: INNIMYNDIR ERU ÚR SVIPAÐ SKIPULAGÐRI ÍBÚÐ Í SKÓLATRÖÐ 6 ÍBÚÐ 114 SEM ER FULLBÚIN MEÐ VÖNDUÐU HARÐPARKETI !
Afhending: Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning fullbúin án megingólfefna. !
SJÁ NÁNAR UM EIGNINA Í SKILALÝSINGU. SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT
INNRÉTTINGAR OG FRÁGANGUR: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Selós og skápar úr vönduðu og slitsterku melamínefni. Heimilistæki eru frá AEG. Kæli-/frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð og spanhelluborð fylgir.
Dekton Rem steinborðplötur eru í eldhúsum og Silestone Nolita steinborðplötur á baðherbergjum.
Baðherbergi og þvottahús, þar sem þau eru sér, eru flísalögð með Limestone MGM 60 × 60 cm flísum frá Ebson, á gólfum og veggjum að hluta.
Íbúðirnar eru með hefðbundnu ofnakerfi auk jafnvægisstillts loftræsikerfis með varmaendurvinnslu sem stuðlar að góðum loftgæðum.
DIGRANES – VÖNDUÐ NÝBYGGING Í KÓPAVOGI: JÁVERK ehf. byggir á Digranessvæðinu glæsilegar og vel skipulagðar íbúðir þar sem lögð er áhersla á vandaða hönnun, góð efnisgæði og nútímalegar lausnir. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án megingólfefna og með vönduðum innréttingum og tækjum.
Bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og möguleiki er á að kaupa viðbótarstæði.
GARÐUR OG UMHVERFI: Sameiginlegur inngarður er skjólgóður og vel hannaður með gróðri, leiktækjum og dvalarsvæðum. Digranes er einstaklega vel staðsett svæði í Kópavogi með góðar samgöngur og stutt í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.
SVANSVOTTUN: Mjög er vandað til framkvæmdarinnar og byggingarefni og framkvæmdir miðast við kröfur Svansins. Sjá nánar um svansvottun hér: Svansvottun
AFHENDING: Til afhendingar við kaupsamning – fullbúin án megingólfefna.
SKIPULAGSGJALD: Kaupendur greiða skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það verður innheimt.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook