Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Klapparstígur 7

101 Reykjavík

74.900.000 kr.

950.508 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2219702

Fasteignamat

71.500.000 kr.

Brunabótamat

47.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1999
svg
78,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 14. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Klapparstígur 7, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 16 01 04. Jason sími 7751515 jason@betristofan.is - Eignin verður sýnd miðvikudaginn 14. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Jason Kristinn Ólasson, sími 7751515 eða netang jason@betristofan.is kynnir: 3ja herbergja íbúð við Klapparstíg 7 í miðbæ Reykjavíkur.

Vel staðsett 78,8 fm þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með garði til vesturs.  Virkt húsfélag með húsverði.

Nánari lýsing:
Forstofa: Eikarparket á gólfi, fataskápur.
Gangur: Eikarparket á gólfi.
Stofa: Björt með eikarparket á gólfi, gólfsíðir gluggar til vesturs og norðurs.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting í góðu lagi, flísar milli efri og neðri skápa. Tengi fyrir uppþvottavél.  Eldhúsið er hálf opið við stofu.  Tæki í eldhúsi eru nýleg.  Úr eldhúsi er útgengt út á hellulagða verönd til vesturs.
Hjónaherbergi: Eikarparket á gólfi.  Stór skápur sem nær upp í loft með speglahurðum.  Gólfsíður gluggi.
Barnaherbergi:  Eikarparket á gólfi, fataskápur og veggfastar hillur og borð fylgja með. 
Baðherbergi: Flíslagt í hólf og gólf með innréttingu yfir og undir vaski. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Geymsla íbúðarinnar er 5,2 fm og er með góðri lofthæð og er í kjallara hússins.
 
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni, eingöngu fyrir íbúðir fyrstu hæðar.
Sameiginleg hjóla- og vagna geymsla í kjallara.
Húsvörður er í húsinu; sem einnig sinnir vinnu fyrir Klapparstíg 1-7 og Skúlagötu 10.

Falleg eign með góðu húsfélagi rétt við miðbæinn.  Öll helsta þjónusta í göngufæri. 

Íbúðir á 1. hæð hafa einkaafnotarétt á lóð allt að 3 metrar frá húsum við stofu íbúðanna. Allar breytingar á lóð eru háðar samþykki húsfélagsins og einnig að þær trufli ekki eðlilega umferð um lóðina.

.Bókið skoðun og nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 löggiltur fasteignasali - jason@betristofan.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. mar. 2024
65.750.000 kr.
62.000.000 kr.
78.8 m²
786.802 kr.
18. apr. 2023
60.400.000 kr.
59.000.000 kr.
78.8 m²
748.731 kr.
7. jún. 2013
24.050.000 kr.
24.800.000 kr.
78.8 m²
314.721 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík