Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2023
85,4 m²
4 herb.
Lýsing
Ásberg fasteignasala kynnir;
Ásberg fasteignasala kynnir eignina: Dalsbraut 1K, 260 Reykjanesbær, birt stærð 85.4 fm.
Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang og verönd í nýlegu steinsteyptu fjölbýlishúsi með lyftu í Dalshverfi í Innri-Njarðvík. Byggt árið 2023.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu alrými, þrjú herbergi og baðherbergi. Sérgeymsla í sameign fylgir.
Eignin er laus við kaupsamning
Nánari lýsing eignar:
Forstofa hefur flísar á gólfi og forstofuskáp
Eldhús er opið við stofu með parket á gólfi vandaða innréttingum með innbyggðum tækjum.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á verönd
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parket á gólfi. og fataskápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu með handlaug, walk in sturta, upphengdur handklæðaofn og salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla skráð 5fm
Umhverfi: vinsæl staðsetning þar sem stutt er leik og grunnskóla. Aðeins 25 mín frá Höfuðborgarsvæði.
Dalsbraut 1 er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 2023 og hannað af JeES arkitektum. Húsið er klætt að utan með bárujárni, sléttri málmklæðningu og viðarklæðningu. Í því eru lyftur og gengið er inn í íbúðirnar af svalagöngum.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is asberg@asberg.is
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, jon@asberg.is
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837, thorunn@asberg.is
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 69.900 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Jón Gunnarsson Lgf Fasteigna- og skipasali Sími 894-3837
Þórunn Einarsdóttir Nám Fasteigna- fyrirtækja og skipasali Sími 898-3837
Vantar allar eignir á skrá. Frítt sölumat.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. des. 2023
21.000.000 kr.
511.000.000 kr.
733.2 m²
696.945 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026