Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1991
svg
139,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing


Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
94,5fm heilsárshús auk 19fm gróðurhúss og 26fm garðskúrs á 4724fm eignarlóð í Reykjaskógi í Bláskógabyggð. 
Eignarlóðin við hliðina, Rjúpnavegur 2, 2475fm að stærð fylgir með í kaupunum. 
Hitaveita, heitur pottur, gróðurhús, ræktunarkassar, geymsluskúr og grasflatir fyrir ferðavagna.

Komið er inn í netta forstofu með hengi og parketi á gólfi.  Þvottahús/geymsla inn af henni. 
Gangur inn og stigi þar strax upp á annað svefnloftið af tveimur, svefnpláss þar fyrir allt að sex manns í þremur rúmum.  Niðri eru tvö svefnherbergi, annað búið tveimur rúmum og fataskáp en tvöfaldur svefnsófi í hinu og kommoða fyrir föt.  Á ganginum eru einnig skápar og baðherbergið þar fyrir innan.  Það er panelklætt, sturtubotn og hengi fyrir, heimagerður handklæðaofn, klósett og vaskur á skáp og speglaskápur yfir, harðparket á gólfi. Innst á ganginum er svo óráðstafað rými eða geymsla og stigi þaðan upp á hitt svefnloftið sem er með panel í lofti og parketi á gólfi og svefnplássi fyrir þrjá í jafn mörgum rúmum.  Aðal rými hússins, stofa og eldhús eru með uppteknu lofti, og gengt út á pall úr stofu.  Eldhúsið stúkað af með skápum, nýleg innrétting og tæki þar sem öll fylgja við sölu eftir nánara samkomulagi sem og húsgögn og flestir innanstokksmunir.  Veggir og loft í stofu er málaður panell og harðparket á gólfi. 
Að utan er húsið klætt með liggjandi viðarklæðningu, hurðir og gluggar úr tré og bárujárn á þaki.
Þá er pallur með skjóli yfir að hluta og hitara þar uppi, og heitur pottur við skjólvegg. Rétt við húsið er ágætt gróðurhús en fjær geymsluskúr og ræktunarkassar, við hlið lóðarinnar Rjúpnavegur 2 sem fylgir við sölu, en þar hafa verið útbúnar tvær grasflatir fyrir ferðavagna.  Lóðirnar annars þéttvaxnar trjám og víði og svæðið er lokað af með öryggishliði. 
Húsið hefur verið í útleigu síðustu misseri en samþykki sveitarfélagsins á þeirri starfsemi liggur ekki fyrir. 
Virkilega áhugaverð eign fyrir stóra fjölskyldu eða vinahóp.

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

 

img
Loftur Erlingsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
img

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. mar. 2025
45.800.000 kr.
59.900.000 kr.
10101 m²
5.930 kr.
1. okt. 2024
40.800.000 kr.
49.000.000 kr.
10101 m²
4.851 kr.
1. ágú. 2024
40.800.000 kr.
16.000.000 kr.
10101 m²
1.584 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum