Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2024
83,9 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Ásberg fasteignasala kynnir;
Ásberg fasteignasala kynnir í sölu Grænuborg 16, Vogum. Birt stærð er 83,90 m².Eignin er laus.
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í nýju og viðhaldsléttu fjölbýlishúsi.
Húsið var byggt árið 2024, er steinsteypt og klætt að utan. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, og eldhús, borðstofa og stofa mynda bjart og opið alrými með útgengi á svalir. Baðherbergi er með þvottaaðstöðu og sérgeymsla er innan íbúðar.
Viðhaldslétt hús í nýju og vaxandi hverfi
Nánari lýsing:
Anddyri: Er með parket á gólfi og fataskápur.
Alrými: Eldhús, borðstofa og stofa í einu björtu og opnu rými. Úr stofu er gengið út á svalir.
Eldhús: Opið inn í stofu, parket á gólfi, falleg dökk innrétting með hvítum efri skápum.
Hjónaherbergi: 12,7 m², parket á gólfi og fataskápar.
Svefnherbergi: Eru tvö með parket á gólfum og eru fataskápar í báðum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með handlaug, upphengt salerni, handklæðaofn og walk-in sturta. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar.
Sameign: Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og tæknirými, auk tilheyrandi lóðar- og sameignarréttinda.
Grænaborg 16 er steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 2024 og klætt að utan, sem gerir það viðhaldslétt. Húsið stendur í Grænubyggð, nýju og vaxandi hverfi í Vogum.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is asberg@asberg.is
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, jon@asberg.is
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837, thorunn@asberg.is
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 69.900 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Jón Gunnarsson Lgf Fasteigna- og skipasali Sími 894-3837
Þórunn Einarsdóttir Nám Fasteigna- fyrirtækja og skipasali Sími 898-3837
Vantar allar eignir á skrá. Frítt sölumat.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. des. 2023
3.240.000 kr.
405.547.000 kr.
610.5 m²
664.287 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026