Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Monika Hjálmtýsdóttir
Andri Sigurðsson
Sigurður Samúelsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Ásakór 1

203 Kópavogur

104.900.000 kr.

659.334 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2285622

Fasteignamat

94.650.000 kr.

Brunabótamat

78.660.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
159,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Aldir fasteignir og Sigurður Samúelsson Lgf  | ss@aldirfasteignir.is kynna:

Falleg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð með bílskúr á 4. hæð í lyftuhúsi í frábæru fjölskylduhverfi í Kópavogi.  Íbúðarrými er 133,6 fm og bílskúr 25,5, samtals 159,1 fm.  Þrjú rúmgóð svefnherbergi - rúmgóð stofa - stórar svalir í suður.  Göngufæri er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu í kringum Kórinn, matvöruverslanir, apótek og fleira.  

Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi og þaðan er útgengt út á suðursvalir
Eldhúsið er með svartlakkaðri innréttingu.  Inn af eldhúsi er þvottahús með innréttingu og flísar á gólfi.
Svefnherbergin þrjú eru öll með harðparketi á gólfi og fataskápum.  Öll frekar rúmgóð.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með viðarinnréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu.

Sérgeymsla íbúðar (7,8 fm) er á jarðhæð ásamt sameiginlegum rýmum hússins.

Bílskúrinn er 25,5 fm og er snyrtilegur með sjálfvirkum hurðaopnara.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@aldirfasteignir.is
----------------------------------------------------------


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. sep. 2016
38.700.000 kr.
42.900.000 kr.
159.1 m²
269.642 kr.
31. júl. 2008
31.140.000 kr.
35.500.000 kr.
159.1 m²
223.130 kr.
12. okt. 2007
28.090.000 kr.
32.900.000 kr.
159.1 m²
206.788 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi