Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
einbýlishús

Karlsrauðatorg 9

620 Dalvík

Tilboð

Fasteignanúmer

F2155021

Fasteignamat

28.250.000 kr.

Brunabótamat

36.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1919
svg
77,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Eignaver 460-6060.

Karlsrauðatorg 9, Dalvík.
Lítið og fallegt einbýlishús, byggt árið 1919, samtals 77,5 fm., sem skiptist í tvær hæðir og risloft.


Á neðri hæðinni, sem er aðeins niðurgrafin, er gengið inn í lítið þvottahús, þar innaf er baðherbergi. Gengið niður úr þvottahúsi, í stofu og úr stofu inn í eldhús.
Stigi liggur upp á aðra hæð úr stofu. Á annarri hæð er lítill gangur, tvö rúmgóð svefnherbergi og lítil forstofa þar sem gengið er út á góða verönd til suðurs og vesturs.

Nánari lýsing, neðri hæð; 
Þvottahús, parket á gólfi. Lítil innrétting fyrir þvottavél, hillur og góður fataskápur. Nýleg útihurð.
Baðherbergið, flísar á gólfi og hluta veggja, gólfhiti, sturta og gluggi með opnanlegu fagi. Baðherbergi var endurnýjað fyrir um 6 árum síðan.
Stofa parket á gólfi. Timburstigi upp á aðra hæð.
Eldhúsið var gert upp fyrir 6 árum síðan, rúmgóð hvít innrétting, parket á gólfi.

Efri hæð;
Gangur, parket á gólfi, hurð inn í forstofu af gangi.
Forstofa, flögumálað gólf, nýleg útihurð sem liggur út á verönd.
Svefnherbergin eru tvö, parket á gólfum herbergja og fataskápur í öðru þeirra. 
Lúga upp á risloft er á gangi.
Risið er óinnréttað, einangrun liggur á gólfborðum.

Góð verönd er við húsið og snýr hún til suðurs og vesturs, hún var smíðum fyrir um fjórum árum.
Lítil geymsla er undir verönd til vesturs.

Aðrar upplýsingar frá seljendum;
- Húseignin var máluð utan fyrir um 6 árum síðan.
- Baðherbergi og eldhús voru endurnýjuð fyrir 6 árum síðan.
- Búið er að endurnýja gólfefni á neðri hæð nýlega
- Frárennsli frá húsinu var endurnýjað að mestu 2025.
- Búið er að endurnýja gler í fjórum gluggum á neðri hæð og einum á efri hæð.
- Hluti af innbúi getur fylgt með við kaupin.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar veita;
Arnar     s; 898-7011 / arnar@eignaver.is
Begga   s; 845-0671 / begga@eignaver.is
Tryggvi  s; 862-7919 / tryggvi @eiganver.is

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. sep. 2018
10.200.000 kr.
6.500.000 kr.
77.5 m²
83.871 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone