Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
fjölbýlishús

Stakkholt 2

105 Reykjavík

53.500.000 kr.

1.114.583 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2217710

Fasteignamat

52.400.000 kr.

Brunabótamat

33.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2014
svg
48 m²
svg
1 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 11. október 2026 kl. 15:30 til 16:00

Opið hús: Stakkholt 2, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 01 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 11. október 2026 milli kl. 15:30 og kl. 16:00.

Lýsing

Snyrtileg og vel skipulögð stúdíóíbúð á jarðhæð með viðarverönd á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 48,0 m² snyrtilega og vel skipulagða stúdíóíbúð á jarðhæð við Stakkholt 2A í Reykjavík. Um er að ræða bjarta og vel nýtta eign í vönduðu steinsteyptu lyftuhúsi frá 2014. Íbúðinni fylgir sérafnotareitur með viðarverönd auk 7 m² sérgeymslu. Staðsetningin er einstaklega góð miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu, verslanir, veitingastaði og miðborgina.

-  Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík
-  Jarðhæð með viðarverönd
-  Björt og vel skipulögð stúdíóíbúð


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Íbúðin er skráð 48,0 m² samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 41,0 m² og sérgeymsla 7,0 m². Húsið er steinsteypt og byggt árið 2014.
Stakkholt 2A er 48 íbúða fjölbýlishús með lyftu. Húsgjöld eru 25.045 kr. á mánuði og innifela almennan rekstur, rafmagn í sameign, húsumsjón, rekstur lyftu, ræstingu sameignar, hita og húseigendatryggingu.

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.
Alrýmið er bjart og einstaklega vel skipulagt þar sem eldhús, stofa og svefnaðstaða mynda eitt opið og vel nýtt rými. Parket er á gólfi og úr alrýminu er gengið beint út á viðarverönd á sérafnotareit íbúðarinnar.
Eldhúsið fellur fallega að alrýminu og er vel skipulagt með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Við hlið eldhússins er gert ráð fyrir ísskáp, sniðug lausn sem nýtir fermetrana einstaklega vel. 
Baðherbergið er rúmgott og flísalagt, með góðri sturtuaðstöðu, salerni og innréttingu með handlaug ásamt spegli með lýsingu. Á baðherberginu er rúmgóð þvottaaðstaða með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla, 7,0 m², fylgir íbúðinni.
Sérafnotareitur: Úr alrýminu er gengið beint út á sérafnotareit með viðarverönd sem veitir notalegt útisvæði í beinu framhaldi af íbúðinni.

Staðsetning og umhverfi: Stakkholt er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík. Stutt er í fjölbreytta verslun og þjónustu, veitingastaði og kaffihús, auk þess sem miðborgin er í þægilegu göngufæri. Staðsetningin hentar því einstaklega vel þeim sem vilja búa miðsvæðis með daglega þjónustu og mannlíf í næsta nágrenni.

Ath. Á ljósmyndum af viðarverönd hafa lausamunir verið fjarlægðir með stafrænni myndvinnslu til að sýna útisvæðið betur. 

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. júl. 2019
31.400.000 kr.
31.000.000 kr.
48 m²
645.833 kr.
29. maí. 2015
20.450.000 kr.
24.300.000 kr.
48 m²
506.250 kr.
24. nóv. 2014
2.270.000 kr.
22.800.000 kr.
48 m²
475.000 kr.
30. des. 2013
117.300.000 kr.
2.800.692.000 kr.
7639.8 m²
366.592 kr.
26. apr. 2012
105.900.000 kr.
600.000.000 kr.
7639.8 m²
78.536 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone