Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Víðir Arnar Kristjánsson
Vista
raðhús

Elsugata 13

815 Þorlákshöfn

84.900.000 kr.

606.429 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2528251

Fasteignamat

62.400.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
140 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 25. október 2026 kl. 14:00 til 14:30

Opið hús: Elsugata 13, 815 Þorlákshöfn. Eignin verður sýnd sunnudaginn 25. október 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

Lýsing

Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu Elsugötu 13, Þorlákshöfn. Fallegt, nýtt og vandlega innréttað 5 herbergja fullbúið endaraðhús á einni hæð með innangengum innbyggðum bílskúr.
Húsið er klætt timburhús frá SG-einingum steypt á sökkul með gólfgeisla. Frábærlega skipulegt fjölskylduhús á frábærum stað í Þorlákshöfn.
 
- Eignin er skráð samkvæmt fasteignaskrá alls 140 fm.
- Íbúðarhluti 109,6 fm. og bílskúr 30,4 fm
- Endaraðhús á einni hæð með innangengum bílskúr
- Rúmgott þvottahús innan íbúðar.
- 4 svefnherbergi (breyting frá teikningu)
- Vandaðar innréttingar, tæki og granítborðplötur.
- Hiti er í gólfum, hitalagnir ísteyptar í botnplötu. Hita stýringar uppsettar.
- Lóð: Mulningur að framan á bílaplani og tyrfð til hliðar og aftan við húsið


SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ MYNDBAND AF EIGN

Nánari upplýsingar veita Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Óskar H. Bjarnasen lgfs., á netfangið oskar@valholl.is eða í síma 691-1931.

Eignin skiptist í:  Forstofu, þvottahús, alrými: eldhús/stofa/borðstofa, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð.
Þvottahús: Er innangengt úr forstofu, flísalagt með vaskinnréttingu á heilum vegg fyrir vélar. Opnanlegur gluggi.
Eldhús: Í parketlögðu alrými er fallegt eldhús með innréttingu á heilum vegg og eyju. Eyjan er með spanhelluborði með innbyggðu gufugleypi, góðum skúffum og granít borðplötu. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, ofn í vinnuhæð fylgir.
Stofa / borðstofa: Í alrýminu, stór og björt stofa, parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar sem snúa út á mögulega suðurverönd.
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt. Innaf  hjónaherbergi eru 2 rými sem nýst gætu m.a. sem fataherbergi.
Svefnherbergi 2: Parketlagt.
Svefnherbergi 3: Parketlagt.
Svefnherbergi 4: Parketlagt. Er teiknað sem geymsla.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum með fallegri vaskinnréttingu, upphengdu salerni, walk in sturtu og handklæðaofni. Útgengi er í lóð.
Bílskúr: Innangengur úr alrými. Stærð 30,4 fm. rafmagnstafla og hitastýringar fyrir gólfhita, flekahurð. Málað gólf, Dungrátt Epoxylakk frá Málningu. Í enda bílskúrs er vaskinnrétting.

Gólfefni, innréttingar og tæki:
Parket - Mammut Plus Makro Oak Light og hurðar frá Birgisson.
Flísar - Carnaby street light grey 30x60 frá Álfaborg í forstofu, þvottahúsi og baðherbergi.
Innréttingar eru í eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og bílskúr
Borðplötur á eldhúsi, eyju og baðherbergi eru frá Granítsmiðjunni - Bianco Roma Quarts 30mm
Öll blöndunartæki og lagnir eru frá Tengi
Eldhústæki eru frá Elko

Nýr leikskóli er staðsettur í næstu götu. Bónus og Krónan einnig. Göngufæri er í alla aðra þjónustu s.s. sundlaug, tómstundir og grunnskóla.
 
Nánari upplýsingar veita Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Óskar H. Bjarnasen lgfs., á netfangið oskar@valholl.is eða í síma 691-1931.

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. mar. 2025
40.500.000 kr.
48.000.000 kr.
10101 m²
4.752 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone