Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
atvinnuhúsnæði

Auðbrekka 13

200 Kópavogur

Tilboð

Fasteignanúmer

F2059430

Fasteignamat

43.100.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
446 m²
svg
3 herb.
svg
Margir inngangar
svg
Hjólastólaaðgengi

Lýsing

Miklaborg kynnir:

Til sölu eða leigu heil húseign sem er 446 fm verslunar-, þjónustu-, skrifstofu eða veitingahús á þremur hæðum við Auðbrekku í Kópavogi. Um er að ræða nýtt hús staðsteypt sem er til afhendingar fljótlega.

Húsið afhendist fullbúið að utan og allt frá fokheldu að innan að fullbúnu allt eftir þörfum kaupanda eða leigutaka. Staðsetning er í fjölförnu hverfi og stutt er í stofnbraut.


NÁNARI LÝSING:

Góð aðkoma er að eigninni á miðhæð frá Auðbrekku. Þar eru tveir inngangar í opið alrými með mikla möguleika. Góðir gluggar eru í allar áttir. Stórt útisvæði er austan og sunnan miðhæðar. Gengið er á milli hæða um steinsteyptan stiga á efri og neðri hæðina. Gert er ráð fyrir lyftu í húsinu.


Neðri hæð er með gluggum á norður og vesturhlið. Gott útisvæði er norðan og vestan megin neðri hæðar. Efri hæð er með góðum gluggum í allar áttir og er opið úr efri hæð í sal miðhæðar. Góðar svalir eru í norð-vestur. Góð lofthæð er í húsinu. Húsið er í dag fullbúið að utan en fokhelt að innan en lóðinni verður skilað fullbúinni.

Eignin getur verið aðlöguð að þörfum kaupanda/leigjanda af seljanda allt eftir þörfum hvers og eins.

Nánari lýsing byggingar: Útveggir eru staðsteyptir og einangraðir að utanverðu með 100mm steinullarplötum. Utan á einangrun er slétt plötuklæðning, dökkgrá að lit. frágangur útveggja að innan er með þeim hætti að þeir eru holufylltir og pússaðir undir málningu. Gluggar og hurðir eru almennt ál/tré gluggar, útihurðir eru álhurðir nema brunakokandi hurðir í kjallara sem að hluta til eru stálhurðir. Innveggir umhverfis blautkjarna eru gipsplötuveggir klæddir með rakavörðu gifsi. Aðrir eru hefðbundnir gipsplötuveggir, 12-15 cm á þykkt. Allar klæðningar eru í brunaflokki1. Svalahandrið á svölum eru úr galvanhúðuðu stáli með samlímdu öryggisgleri.


Húsið er einangrað og klætt að utan og gluggar eru ál/tré gluggar og er því húsið viðhaldslétt fyrir vikið.



Virðisaukaskattur er á eigninni.


Frábært tækifæri fyrir aðila sem vilja heila húseign og vilja hanna í takt við þá starfsemi sem nýta á eignina í.


Allar nánari upplýsingar veita:

Svan Guðlaugsson löggiltur fasteignsali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 -2307 eða olafur@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík