Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórarinn Halldór Óðinsson
Vista
sumarhús

Langahlíð 18

311 Borgarnes

16.900.000 kr.

515.244 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2110665

Fasteignamat

16.850.000 kr.

Brunabótamat

12.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1981
svg
32,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Nes fasteignasala kynnir eignina:
Langahlíð 18, 311 Borgarnes sem er sumarbústaður í grónu umhverfi í skipulögði frístundahúsahverfi að Valbjarnarvöllum, Borgarfirði.                                                                                                         

Um er að ræða A bústað, 32,8 fm að stærð, byggðan 1981 á 5.000 fm leigulóð. Húsið er byggt á stöplum og er lóðin mikið ræktuð með
 fjölbreyttum trjágróðri sem veita mikið skjól og næði og einnig er mjög fallegt útsýni frá efri hluta lóðar til vesturs. Fjölbreyttar plöntur, mikill gróður og berjalyng. Gufuárvatn, Selborgarfoss og Langavatn í næsta nágrenni. Er ca. 20 mín fjarlægð frá Borgarnesi. Mikil og falleg ósnortin náttúra í nánasta umhverfi og veiðivötn. 24 bústaðir eru í hverfinu. 

Nánari lýsing
Húsið skiptist í forstofu, lítið salerni, eldhús og setustofu sem einnig er notuð sem svefnherbergi. Svefnloft er yfir hluta hússins. Í eldhúsi er lítil innrétting með gaseldavél. Gengið er úr stofu út á sólpall sem snýr mót suðvestri.
Forstofa (parket). Salerni (parket, salerni, vaskur). Hol (parket, stigi upp á svefnloft sem er yfir hluta hússins). Eldhús (parket, gömul gas eldavél í góðu standi, opið að stofu). Stofa (parket, útgangur til suðurs út á verönd).

Annað: Verönd á norður, suður og vestur hlið. Verkfæraskúr 4 fm að stærð, kaldur skúr á lóðinni. Rafmagn 12v (sólarsella). Kalt vatn er við húsið en neysluvatnslagnirnar inn í sjálft húsið þarfnast viðgerðar. Rafmagn er búið að leggja upp að húsinu, rafmagnstafla fylgir (eftir að draga í). Gasofn, húsið er hitað upp með gasi. Nýleg rotþró. Kvistgluggar á stofu. Skipt var um gler 2021 að framan og í kvisti. Innbú fylgir m.a. falleg gömul tekk húsgögn. Rúmið og nokkrir persónulegir munir og föt fylgja ekki. Á lóðinni er búið að rýma fallegt svæði við hlið bústaðsins og setja undirstöður fyrir gestahús. Á lóðinni er einnig ósamsett gestahús 14,9 fm sem fylgir (lítilegar skemmdir eru á húsinu en það hefur staðið innpakkað á lóðinni frá því í júní). https://volundarhus.is/bjalkahus/bjalki-gestahus/sky15-3-44/  Gestahúsið fylgir og eignin ásamt fylgihlutum selst í núverandi mynd. 
 
Lóðarleiga um kr. 80.000 á ári. Leigusamningur gerður til 20 ára í september 2021.
Eignarhlutur er í heilsárs vatni, 2 x 10.000 l. tankar.
Greiðsla í sumarhúsafélag á svæðinu kr. 20.000.- á ári.

Á Valbjarnarvöllum eru mjög fallegar gönguleiðir og stórbrotið landslag. Þá er Borgarnes í næsta nágrenni um 18 km.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 865-0350 eða 497-0040, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

img
Þórarinn Halldór Óðinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Nes fasteignasala ehf
Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone
img

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. des. 2023
13.300.000 kr.
15.700.000 kr.
32.8 m²
478.659 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi