Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vera Sigurðardóttir
Vista
sumarhús

Miðengi

805 Selfoss

39.000.000 kr.

880.361 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2207812

Fasteignamat

28.250.000 kr.

Brunabótamat

32.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1965
svg
44,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 8. nóvember 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Miðengi , 805 Selfoss. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Notalegur sumarbústaður á einstaklega gróinni og fallegri lóð við Miðengi í Grímsnesi.
  • Stór og gróin 3.736 m² eignarlóð
  • Pallur með heitum potti
  • Eftirsótt staðsetning
  • Hitaveita
Birt stærð eignar er 44,3 m² samkv. HMS.

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í  S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

Eignin skiptist í eldhús, stofu / borðkrók, tvö svefnherbergi, baðherbergi og svefnloft. Auk þess er geymsluskúr við húsið sem gengið er í utan frá.
Nánari lýsing eignar
Eldhús: Komið er inn í opið og bjart eldhús með góðu skápaplássi. Eldhúsið tengist stofu og borðkrók og nýtist rýmið því vel.
Stofa: Björt og notaleg stofa með borðkrók og parketi á gólfi. Stofa og eldhús mynda saman opið og notalegt alrými.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð og björt svefnherbergi eru í húsinu.
Svefnloft: Rúmgott svefnloft með glugga sem býður upp á gott viðbótarsvefnpláss og nýtist vel þegar fjölskylda eða gestir dvelja í húsinu.
Baðherbergi: Notalegt baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug.
Geymsluskúr: Geymsluskúr er staðsettur fyrir aftan húsið og gengið er í hann utan frá. Skúrinn er ekki fullkláraður.
Lóð: Eignin stendur á 3.736 m² eignarlóð sem er einstaklega gróin og skjólgóð, með miklum gróðri og háum trjám sem skapa fallega umgjörð um bústaðinn. Við húsið er pallur með heitum potti.

Staðsetning
Miðengi er í Grímsnesi. Samkvæmt upplýsingum seljanda er eignin í um 50 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík, 10–15 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi og 5–10 mínútna akstursfjarlægð frá 9 holu golfvelli. Ekið er inn Vaðlækjarveg þar sem skilti merkt „Vaðlækjarvegur“ er við afleggjarann.


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.


Ath. Sumar myndir hafa verið unnar með aðstoð gervigreindar þar sem húsgögnum og lausamunum hefur verið bætt inn til að gefa hugmynd um mögulega nýtingu og ásýnd rýma. Myndirnar eru eingöngu til viðmiðunar og geta einstök atriði vikið frá raunverulegu útliti eignarinnar. Fastar innréttingar og aðrir meginþættir eignarinnar hafa ekki verið breyttir.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. sep. 2021
14.750.000 kr.
25.000.000 kr.
44.3 m²
564.334 kr.
3. sep. 2018
11.750.000 kr.
12.219.000 kr.
44.3 m²
275.824 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík