Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Árni Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2022
76,2 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is
Falleg og vönduð 2ja herbergja neðri hæð í litlu fjölbýli með sér inngangi, að Unnardal 3, í Njarðvík, stærð 76,2 fm netto.Mjög vel staðsett íbúð sem hentar vel fyrir barnafólk. Innréttingar eru frá HTH og eldhústæki frá AEG.
2 rúmgóð svefnherbergi. Miðíbúð. Rúmgóð verönd, sem snýr í suðvestur. Útsýni af þeim.
Nánari lýsing.
Forstofa er flísalögð með stórum og góðum forstofuskáp.
Svefnherbergi: Er með glugga. Það er rúmgott, harðparket á gólfi og góðir hvítir fataskápar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum. Hvít innrétting með speglaskáp, upphengt salerni, handklæðaofn og "walk in" sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Er hvít HTH innrétting með silestone-steini á borð. Bökunarofn í vinnuhæð, niðurfelldur vaskur og uppþvottavél innbygð í innréttingu. Harðparket á gólfi.
Stofa: er opin með eldhúsi. Harðparket á gólfi. Útgengi á mjög rúmgóðar, flott verönd með útsýni.
Geymsla, inna forstofu, með glugga. Parket á gólfi. (Mögulegt að nota sem herbergi)
Íbúðin er ný máluð.
Góð eign sem vert er að skoða. Gengi beint inn af hellulögðu gangstíg.
Í göngufæri við Stapaskóla og 20 mín fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Skv. viðbótarskiptasamningi á hver íbúð sér bílastæði. Þessi íbúð á stæði næst inngangi. Auk þess eru þrjú stæði sameiginleg, fyirr hvorn matshluta.
Eign: 0102 Unnardalur 3B Fasteignanúmer F2506544 Eignin er tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð matshlutans, merkt 0102, birt stærð 76,2 m². Eigninni tilheyrir sérnotaflötur á lóð sem er breidd íbúðar og nær 3 m. út frá húsi að aftan (sjá grunnmynd fyrstu hæðar). Eignin er merkt með appelsínugulum lit á teikningum. Birt stærð séreignar 0102 mhl 02: 76,2m² Eign 0102 tilheyra eftirfarandi hlutfallstölur Hlutfallstala í sameign allra mhl 02: Hlutfallstala í lóð: Hlutfallstala í hita mhl 02: 14,63% 7,32% 14,70%
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. des. 2024
44.650.000 kr.
54.600.000 kr.
20102 m²
2.716 kr.
20. mar. 2024
44.650.000 kr.
48.900.000 kr.
76.2 m²
641.732 kr.
1. okt. 2021
1.820.000 kr.
37.500.000 kr.
76.2 m²
492.126 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026