Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Kirkjusandur 1

105 Reykjavík

99.900.000 kr.

880.952 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2231192

Fasteignamat

90.100.000 kr.

Brunabótamat

70.010.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1996
svg
113,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Sunna fasteignasala, Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna íbúð 201 við Kirkjusand 1, 105 Reykjavík. 

Um er að ræða bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð sem er 113 fm með yfirbyggðum svölum og stæði í bílakjallara. Íbúðin er laus við kaupsamning. 
Eignin skiptist í eldhús, tvennar stofur, hol, baðherbergi, 2 svefnherbergi; annað með fataherbergi, yfirbyggðar svalir, geymslu/búr innan íbúðar auk geymslu í sameign. Á baðherbergi er góð þvotta aðstaða. 

Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi, stór skápur fyrir yfirhafnir.
Stofa/borðstofa/sjónvarpshol/svalir:  Sjónvarpshol, borðstofa og stofa eru mjög rúmgóð rými. Parket er á gólfum. Úr stofu er útgengt á lokaðar svalir. Þar eru flísar á gólfi og stór gluggi með opanlegu fagi.
Eldhús: Gott eldhús með parketi á gólfi, vandaðri innréttingu með góðum efri og neðri skápum, ljósri borðplötu og flísum á vegg á milli efri og neðri skápa. Keramik helluborð, vifta og ofn. 
Svefnherbergi 1: Rúmgott herbergi með góðum glugga, fataherbergi/rými þar sem gengið er upp eitt þrep. Rennihurð á milli. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi, góður gluggi.
Baðherbergi: Flísalagt með upphengdu salerni, walk in sturta, vönduð innrétting með skúffum, stór spegill með lýsingu fyrir ofan, og tvöföldum skáp með miklu geymsluplássi. Nýleg ljós innrétting fyrir bæði þvottavél og þurrkara. 
Geymsla 1: Geymslan er innan íbúðar og nýtist bæði sem búr og geymsla.
Geymsla 2: Í sameign er önnur geymsla sem er 5,7 fm.
Stæði í lokaðri bílageymslu: Merkt 04-0101.

Engar fyrirhugaðar framkvæmdir eru á vegum húsfélagsins. Staða framkvæmdasjóðs er um kr. 7.600.000. Mánaðarlegt gjald í hússjóð er kr. 45.367.

Annað: Sameign hússins er vel um gengin og snyrtileg, húsvarðaríbúð í sameign er í útleigu og skilar húsfélaginu tekjum sem og rými sem leigt er út til snyrtistofu. Sameiginleg líkamsræktar aðstaða og púttvöllur er á lóð hússins, og húsvörður starfar fyrir þau þrjú hús sem standa á lóðinni. 

Þetta er einstaklega falleg og mjög vel með farin eign á frábærum stað. Fallegt útsýni er frá borðstofu og frá svölum eignarinnar. 

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Marta Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sunna fasteignasala
Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
img

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. nóv. 2009
25.560.000 kr.
27.500.000 kr.
115.2 m²
238.715 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík