Upplýsingar
Byggt 2008
217,6 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson kynna: Fallegt og vel við haldið einbýlishús á einni hæð við Blikastíg, 225 Garðabæ. Húsið er staðsett í jaðri byggðar norðanlega á Álftanesi í litlum vinalegum og rólegum íbúðakjarna. Húsið er allt klætt með viðhaldslítilli litaðri álklæðningu. Fallegur og gróinn garður með timburverönd og heitum potti, stórt hellulagt bílaplan og geymslugarðskúr.
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum skáp. Inn af forstofu er gestasnyrting. Rúmgóð og björt stofa/borðstofa með gluggum á þrjá vegu, útgengi út á suður verönd. Eldhús er opið inn í stofu, stór hvít innrétting og eyja. Sjónvarpskrókur er við hlið eldhúss. Á svefnherbergisgangi er stórt hjónaherbergi með góðum fataskáp, útgengi út á suðurverönd. Þrjú rúmgóð barnaherbergi með góðum skápum, baðherbergi með ljósri innréttingu og flísalagt í hólf og gólf, baðkar og sturtuklefi. Þvottahús með hvítri innréttinu með miklu skápaplássi. Útgengi er úr þvottahúsi út í garð. Innangegnt er úr þvottahúsi inn í 42,4 fm. bílskúr. Bílskúrinn er innréttaður sem góð studioíbúð með eldhúsinnréttingu, svefnkrók, stofu, baðherbergi með sturtu ásamt rúmgóðri geymslu. Á gólfum eignar er harðparket á forstofu, eldhúsi, stofu og herbergjum, en á baðherbergi og þvottahúsi eru flísar. Um er að ræða fallega og vel skipulagða eign á vinalegum stað í jaðri Álftaness þar sem ósnortin náttúran er allt um kring. Leik- og grunnskóli ásamt íþróttamiðstöðinni við Breiðumýri (sundlaug og fjölnota íþróttasalur), fótboltavöllur utanhúss, 9 holu golfvöllur í næsta nágrenni ásamt frábærum göngu- og skokkleiðum.
Bóka skoðun og nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið pall@fasteignasalan.is