Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1975
svg
215,4 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

EINBÝLISHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM - VIÐJUGERÐI 5, 108 REYKJAVÍK

ATH - EIGNIN ER SELD 


Rúmgott og afar vel við haldið einbýlishús á eftirsóttum stað, þar sem hver fermetri er vel nýttur. 
Húsið var byggt 1975. Stærð lóðar er 784 fm.
Birt stærð er 215,4 fm., þar af er 20 fm. innbyggður bílskúr. 

Eigendur hafa látið til sín taka á hverju ári frá kaupum og fylgir eigninni skýr og heildstæð viðhaldssaga allt frá árinu 2016.

Nánari lýsing:
Neðri hæð: 
Komið er inn í flísalagða forstofu. Parektlagt rúmgott hol.
Tvö parketlögð svefnherbergi með fataskápum. Úr öðru þeirra er útgengt á verönd í garð til suðurs.
Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf. Rúmgóð "walk-in" sturta og vaskaskápur.
Geymsla og fataherbergi inn af holi. Rúmgott þvottahús með innréttingu og vaski. 
Inn af þvottahúsi er geymsla. Þaðan er útgengt á glæsilegan viðarpall með heitum og köldum potti, ásamt útisturtu. 
Efri hæð:
Parketlögð stofa/borðstofa með góðri lofthæð og útgengi á suðursvalir.
L-laga eldhús með miklu skápaplássi og eyju. Span helluborð, tveir ofnar í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og frystir. Flísar á milli efri og neðri skápa. 
Búr inn af eldhúskrók. 
Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf með baðkari og sturtugleri. 
Tvö parketlögð svefnherbergi. Í hjónaherbergi er gott skápapláss og útgengi á austursvalir.
Bílskúr:
Innbyggður 20 fm. bílskúr með heitu og köldu vatni.
Hellulagt bílastæði fyrir a.m.k. þrjá bíla ásamt rafhleðslustöð. Snjóbræðslukerfi að mestum hluta.

Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað á lóðinni undanfarin ár. 
M.a. skjólgirðingar, viðarpallur, heitur pottur, kaldur pottur og útisturta.
Garðurinn státar af fjölbreyttum gróðri, m.a. Reynitrjám, Koparreyni, Birkikvistum, Hindberjatrjám, Eplatrjám, Rósarunnum, Rifsberjarunnum ofl.   

Viðjugerði 5 er miðsvæðis, stutt í Kringluna, Borgarleikhúsið og Verslunarskólann. 
Skólar, heilsugæsla og almenn þjónusta í göngufæri.

Einstaklega fjölskylduvænt einbýlishús í grónu og eftirsóttu hverfi í 108 Reykjavík.


Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@hfs.is 
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@hfs.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Kristján Þór Sveinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Kristján Þór Sveinsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. apr. 2016
54.700.000 kr.
64.000.000 kr.
215.4 m²
297.122 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Kristján Þór Sveinsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík