Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Víðir Arnar Kristjánsson
Vista
fjölbýlishús

Lautasmári 5

201 Kópavogur

74.900.000 kr.

795.117 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2228049

Fasteignamat

75.450.000 kr.

Brunabótamat

52.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1996
svg
94,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 21. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Lautasmári 5, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 07 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 21. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

NÝTT Í SÖLU: Heiðar Friðjónsson  löggiltur fasteignasali og Valhöll fasteignasala kynna, fallega og vel með farna, vel skipulagða, 3ja herbergja ibúð á  7. hæð með fallegu útsýni við Lautasmára 5 í Kópavogi. Eignin er skráð alls 94,2 fm þar af  4,2 fm geymsla í sameign . Eignin skiptist þannig: Forstofa, sjónvarpshol, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Tvö svefnherbergi ásamt þvottahúsi innan íbúðar. Sér geymsla í kjallara ásamt sameiginlegri vagna og hjólageymslu á jarðhæð. Fallegt útsýni er úr íbúðinni til suðurs og vesturs en svalirnar eru lokaðar með gleri sem auðvelt er að opna, Þær snúa til suðurs.

ATH. opið hús er á eigninni miðvikudaginn 21.október frá kl. 17.00 til 17.30, Heiðar verður á staðnum og sýnir áhugasömum, s.693-3356, heidar@valholl.is

Nánari lýsing eignar:
Forstofa með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi 
Eldhús með innrétting á tvo vegu með ofni í vinnuhæð og góðum og afar björtum borðkrók með útsýni til suðurs. Keramik helluborð með viftu yfir, ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, parket á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með parket á gólfi og stórum gluggum til suðurs og útgengi á góðar suður svalir með svalarlokun.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skápum, og parketi  á gólfi. 
Herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, sturtu, innrétting með skúffum undir vaski. 
Þvottahús er innan íbúðar með hillum, skolvaski og plássi fyrir þurrkara og þvottavél.
Geymslan í kjallara er 4,2 fm með máluðu gólfi.

Þetta er vel skipulögð og vel með farin björt útsýnisíbúð með útsýni í þrjár áttir. Mjög snyrtileg sameign og hleðsla fyrir rafmagnsbíla úti á plani. Næg bílastæði. Allar upplýsingar um eignina veitir veitir Heiðar Friðjónsson lögg. fast í s. 693-3356 eða á heidar@valholl.is 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Heiðar Friðjónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Heiðar Friðjónsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Heiðar Friðjónsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík