Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Sigurðsson
Þorsteinn Magnússon
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1987
svg
42 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S.482 4800 kynna:
Sjarmerandi sumarhús við Fitjahlíð 7A í Skorradal, á fallegum útsýnisstað með útsýni yfir Skorradalsvatn. Húsið snýr til suðurs og nýtur sólar allan daginn. Stórir sólpallar á pöllum, yfirbyggð verönd og rafmagnskynntur heitur pottur skapa notalega aðstöðu til að njóta útiveru í skógi vöxnu umhverfi.
Húsið er skráð 42 m² hjá HMS en viðbygging með forstofu og svefnherbergi er ekki innifalin í skráðri stærð. Heildarstærð er áætluð um 52–56 m² samkvæmt upplýsingum eiganda.
Húsið skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og stofu og eldhús í opnu rými. Stórir gluggar veita fallegt útsýni yfir vatnið úr alrýminu og sýnilegir loftbitar gefa húsinu hlýlegan svip.
Í eldhúsi er hvít innrétting með viðarborðplötu og uppþvottavél. Úr forstofu er útgengt á pall.
Ýmsar endurbætur hafa verið gerðar undanfarin ár, meðal annars endurnýjun raflagna innanhúss að hluta, glers og gluggalista þar sem þurfti, auk endurbóta á pöllum og klæðningum. Þakjárn hefur verið grunnað og málað, pallur slípaður og borið á hann og húsið málað að innan að loftum undanskildum. Teikningar að frekari stækkun fylgja eigninni.
Lóðin er 2.000 m² gróin og skógi vaxin leigulóð. Lóðarleigusamningur var endurnýjaður til 20 ára árið 2023.
Fallegur sælureitur í Skorradal með sólríku útisvæði og einstöku útsýni yfir vatnið.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar á skrifstofu Árborga

 

Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. nóv. 2023
16.950.000 kr.
20.000.000 kr.
42 m²
476.190 kr.
29. mar. 2017
8.040.000 kr.
10.950.000 kr.
42 m²
260.714 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone