Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Júlíus Margeir Steinþórsson
Jóhannes Ellertsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
81,7 m²
svg
4 herb.
svg
3 svefnh.

Lýsing

eignasala.is kynnir eignina Dalsbraut 1, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 252-6447 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Dalsbraut 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-6447, birt stærð 81.7 fm.
EIGNASALA.IS KYNNIR – DALSBRAUT 1J, 260 REYKJANESBÆ
Björt og sérlega vel skipulögð 81,7 m² fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með SÉRINNGANGI, þremur svefnherbergjum, hellulagðri verönd, sérgeymslu og merktu bílastæði.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ FINNUM TÍMA SEM HENTAR ÞÉR!
Eignin er í nýlegu fjölbýlishúsi, byggðu árið 2023, á góðum stað í Dalshverfi í Innri-Njarðvík. Íbúðarrýmið er 77,8 m² og sérgeymsla í sameign 3,9 m², samtals 81,7 m².
Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og bjart opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast saman. Úr stofu er útgengt á hellulagða verönd.
NÁNARI LÝSING
Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur.
Eldhús: Grá innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Bakarofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Opið yfir í stofu og borðstofu.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými með gólfsíðum gluggum og útgengi á hellulagða verönd.
Svefnherbergi: Þrjú talsins. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og tvö svefnherbergi eru til viðbótar.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með vaski, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og rúmgóð sturta með glerþili. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla: 3,9 m² sérgeymsla í sameign.
Eigninni fylgir merkt bílastæði og sérafnotaflötur fyrir verönd samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Sameiginleg lokuð og upphituð hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.
Húsið er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 2023. Það er einangrað að utan og klætt loftræstri álklæðningu ásamt viðarklæðningu að hluta. Lyfta er í húsinu.
Góð staðsetning í Stapaskólahverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttaaðstöðu, bókasafn og aðra þjónustu.
Helstu kostir eru þrjú svefnherbergi, jarðhæð með sérinngangi, bjart opið alrými, hellulögð verönd, sérgeymsla og merkt bílastæði.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ SÝNUM 
Júlli – 899 0555, Jói – 864 9677, Bjarni Fannar – 773 0397, Reynir – 777 0915 Skúli – 898 7209
EIGNASALA.IS – Hafnargata 90a, Keflavík
 tölvupóstur julli@eignasala.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.
 

Eignasala.is og Leigumiðlun Suðurn.

Eignasala.is og Leigumiðlun Suðurn.

Hafnargötu 90, 230 Keflavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. des. 2023
20.400.000 kr.
511.000.000 kr.
733.2 m²
696.945 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignasala.is og Leigumiðlun Suðurn.

Eignasala.is og Leigumiðlun Suðurn.

Hafnargötu 90, 230 Keflavík