Lýsing
Eignin skiptist í forstofu, stórt svefnherbergi (sem er á teikningum 2 herbergi), gang, eldhús, baðherbergi og þrjár samliggjandi stofur með rennihurðum á milli. Auðvelt er að nýta tvær af þremur stofum sem svefnherbergi. Aukin lofthæð er í íbúðinni eða 2,65 metrar og fallegir gifslistar eru í loftum. Hellulögð verönd er fyrir framan íbúðina og lóð hússins, sem er í óskiptri sameign er mjög stór og einstaklega glæsileg með fallegum gróðri.
Íbúðin er 94,7 fm (merkt 01-0001) og köld geymsla er 3,3 fm (merkt 01-0002) og geymsla er 5,5 fm (merkt 70-0102) samtals er eignin skráð 100,2 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Íbúðin hefur verið þó nokkuð endurnýjuð hið innra á sl árum, m.a. eldhúsinnrétting og tæki, baðherbergi, gólfefni, raflagnir og tafla og er í góðu ástandi. Klóaklagnir undir húsi og út í götu eru nýlegar og ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
Forstofa flísalögð og rúmgóð. Fyrir framan inngang í íbúðina er hellulögð og skjólsæl verönd til suðurs, sem eingöngu hefur verið nýtt af eigendum þessarar íbúðar.
Gangur/Hol er með parket á gólfi.
Svefnherbergi parketlagt og stórt með gluggum í tvær áttir. Á teikningum er þetta herbergi tvö svefnherbergi og gengið í annað af gangi en hitt úr forstofu.
Eldhús flísalagt og með fallegum hvítum innréttingum með flísum á milli skápa og gashelluborði. Tengi fyrir uppþvottavél er í eldhúsi og útgengi á baklóð hússins.
Þrjár samliggjandi stofur allar parketlagðar. Sú stærsta er í miðjunni og er innangengt í báðar hinar um rennihurðir úr henni. Því væri mjög auðvelt að nýta tvær af þremur stofum sem svefnherbergi ef vill.
Baðherbergi korklagt gólf og flísaplötur á veggjum, vegghengt wc, skápar og baðkar með sturtuaðstöðu með gleri.
Sameiginlegt þvottaherbergi sem innangengt er í úr eldhúsi er með lökkuðu gólfi, glugga, vaski og sér tenglum fyrir íbúðina.
Sameiginlegt geymslurými er innaf þvottaherbergi, með glugga og lökkuðu gólfi.
Tvær sérgeymslur fylgja íbúðinni. Önnur er í steyptri byggingu á baklóð og er hún með rafmagni, en hin er undir tröppum við útgengi úr eldhúsi og er hún köld.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.