Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Mýrargata 26

101 Reykjavík

68.700.000 kr.

1.040.909 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2326620

Fasteignamat

74.500.000 kr.

Brunabótamat

49.020.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2014
svg
66 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 19. október 2026 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Mýrargata 26, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 05. Eignin verður sýnd mánudaginn 19. október 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Mýrargata 26, íbúð 205 sem er 2ja herbergja íbúð í lyftuhúsi með sérmerktu stæði í bílageymslu. Íbúðin er með sérinngangi. Íbúðin er skráð 65,7 fm og þar af er geymslan 6,9 fm. Eigninni fylgir sérafnotaréttur fyrir framan inngang. Íbúðin er vel staðsett og stutt í alla þjónustu. Allir eigendur hússins hafa aðgang að stórum og veglegum þaksvölum á 6. og 7. hæð. Af svölunum er einstakt sjávarútsýni og útsýni yfir Reykjavík. Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign, Í húsinu er húsvörður. Arkitekt Gláma-Kím

Lýsing eignar: 
Gengið er inn um sérinngang úr sameiginlegum garði, sérafnotaréttur fyrir framan inngang.
Komið er inn í forstofu með flísum og þaðan gengið inn á gang með harðparketi. 
Hjónaherbergi er með fataskáp og parketi. 
Baðherbergi er með 2 flísalagða veggi, sturtuklefa, innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Eldhús og stofa er opið rými, hvít innrétting á einum vegg, útgengt á svalir til suðausturs með útsýni.

Harðparket eru á gólfum og flísar á baðherbergi og anddyri. Gólfhiti er í íbúðinni.

Sameign: Í sameign er sérbílastæði sem fylgir íbúðinni á efri hæð bílageymslu, komin er rafmagnshleðslustöð sem fylgir með, sérgeymsla en einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með beinu aðgengi út. Sameign er óvenjumikil og þaksvalir sem tilheyra sameign eru á 6. og 7. hæð með einstöku sjávarútsýni sem og yfir Reykjavík. Einnig er sameiginlegt þvottahús.

Íbúðin er mjög vel staðsett í hjarta Reykjavíkur með verslun og þjónustu í göngu- eða hjólafæri. Mikið um listalíf, viðburði og hátíðir. Það eru skólar og leikskólar í göngu færi. Grandi er í 3-5 mín göngufæri með allri sinni þjónustu, s.s. matvöruverslanir, veitingastaðir, BYKO, Elko, Jysk og mikið um sérverslanir ásamt Crossfit stöð, golfhermar og jógastöð. 

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða netfangið jason@betristofan.is - löggiltur fasteignasali og / eða Hörður Sverrisson, lgf s 899-5209, hordur@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. mar. 2014
12.700.000 kr.
29.565.000 kr.
66.2 m²
446.601 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík