Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1990
svg
140,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 17. nóvember 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Ásholt 22, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu ÁSHOLT 22, 105 Reykjavík. Einstaklega glæsilegt og vel við haldið 4ra herbergja raðhús á tveimur hæðum. Um er að ræða bjarta og rúmgóða fjölskyldueign á eignarlóð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og stórum suðvestursvölum. Eigninni fylgja tvö bílastæði í bílageymslu. Sameign er snyrtileg og vel við haldið, með lokuðum sameiginlegum garði og leikaðstöðu. Frábær staðsetning í grónu og vaxandi hverfi þar sem stutt er í miðborg Reykjavíkur, verslanir og alla helstu þjónustu.

Eignin er skráð alls 140,8 fm. samkvæmt HMS. , byggt árið 1990. Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa: Skápur, fatahengi og gestasnyrting - flísar á gólfi. 
Gestasnyrting: Inn af forstofu er snyrtileg gestasnyrting með flísum á gólfi og veggjum.
Hol: Tengir saman helstu rými neðri hæðar. Þaðan liggur fallegur stigi með stálhandriði og harðviðarþrepum upp á efri hæð - gegnheilt beykiparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Bjart og rúmgott alrými þar sem stofa og borðstofa mynda samfellda heild - gegnheilt beykiparket á gólfi. Útgent á stórar suðvestursvalir.
Svalir: Rúmgóðar svalir sem snúa til suðvesturs með útgengi frá stofu - stærð 16,4 fm.
Eldhús: Vel útbúið eldhús með innréttingu í viðaráferð, gegnheilli viðarborðplötu og vönduðum heimilistækjum. Eldhúsið tengist björtum borðkrók í sólstofu - flísar á gólfum eldhúss og sólstofu.

Nánari lýsing efri hæðar:
Hol
: Stigi frá neðri hæð liggur upp í hol sem tengir saman herbergi og baðherbergi hæðarinnar - teppalagt gólf.
Hjónaherbergi: Rúmgott og notalegt hjónaherbergi, með stórum fataskáp með speglahurðum, innbyggðum náttlömpum og rými fyrir skrifborð, hægindastól eða sófa - teppalagt gólf.
Herbergi 2: Rúmgott herbergi með innbyggðum fataskápum sem ná yfir heilan vegg og geymsluhillum - korkflísar á gólfi.
Herbergi 3: Rúmgott herbergi með fataskáp með speglahurðum, hillum og útsýni yfir sameiginlegan inngarð - korkflísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari, ljósri innréttingu, tenging fyrir þvottavél og opnanlegum glugga.

Geymslur og sameign:
Sérgeymsla
: Eigninni fylgir 8,2 fm. sérgeymsla í sameign í kjallara.
Bílageymsla: Tvö bílastæði í sameiginlegri bílageymslu fylgja eigninni. Þar er einnig bílaþvottaaðstaða.
Þvottahús: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús með þvottavélum til afnota fyrir íbúa.
Lóð og sameign: Húsið stendur á sameiginlegri eignarlóð. Sameiginlegur garður er lokaður og þar er leikaðstaða fyrir börn. Sameiginlegum rýmum er vel við haldið og húsvarðarþjónusta er til staðar.

Allar nánari upplýsingar veita:
Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is
Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, s. 867-3040 / kristjan@trausti.is
Bóka verðmat - www.trausti.is - Trausti á Facebook
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Kristján Baldursson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. feb. 2016
41.850.000 kr.
48.500.000 kr.
140.8 m²
344.460 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík