Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Bjarkarholt 12

270 Mosfellsbær

145.900.000 kr.

964.309 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2503352

Fasteignamat

113.200.000 kr.

Brunabótamat

108.930.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
151,3 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsileg 151,3 m2 fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð með 34,2 m2 þaksvölum, miklu útsýni og tveimur bílastæðum í bílageymslu. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri. Beint aðgengi úr lyftu inn í íbúð. Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, sér þvottahús, stofu, borðstofu og eldhús með eyju.

Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Anddyri: Komið inn í anddyri beint úr lyftu. Á gangi eru rúmgóðir forstofuskápar. Til vinstri eru þrjú svefnherbergi, sér þvottahús og baðherbergi.

Barnaherbergi: Tvö barnaherbergi. Fataskápar í báðum herbergum. Í öðru herberginu er lítil geymsla.

Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Inn af hjónaherberginu er sér baðherbergi með sturtu.

Þvottahús: Sér þvottahús með innréttingu þar sem er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.

Eldhús: Glæsilegt og rúmgott eldhús með dökkum innréttingum og ljósum borðplötum úr stein. Stór eldhúseyja með helluborði, skúffum og góðu vinnuplássi. Háfur yfir eyju og góð aðstaða fyrir barstóla. Eldhúsið er opið inn í borðstofu og stofu.

Stofa / Borðstofa: Björt og rúmgóð alrými með stórum gluggum. Stofa og borðstofa tengjast eldhúsi. Fallegt útsýni úr báðum rýmum. Útgengt út á stórar 34,2 m2 þaksvalir frá borðstofu og stofu.

Baðherbergi: Vandað og snyrtilegt baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi. Dökk innrétting með handlaug og upphengdu salerni og sturtu.

Þaksvalir: Sérlega rúmgóðar, 34,2 fm þaksvalir sem liggja meðfram íbúðinni og snúa að mestu til suðurs. Svalirnar eru hellulagðar og með skjólveggjum. Af þeim er víðáttumikið útsýni yfir byggðina í Mosfellsbæ og til fjalla. Hér er frábært útisvæði með fjölbreyttum nýtingarmöguleikum.

Bílageymsla og geymsla: Tvö sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgja eigninni ásamt 11,4 fm sér geymslu.

Staðsetning: Bjarkarholt er á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ þar sem stutt er í fjölbreytta verslun og þjónustu. Í næsta nágrenni má finna meðal annars heilsugæslu, sundlaug, líkamsrækt, veitingastaði og verslanir.

Mosfellsbær býður upp á fjölbreytta útivistarmöguleika, fallegar göngu- og hjólaleiðir og nálægð við náttúruna.

Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is


Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. sep. 2020
26.950.000 kr.
87.000.000 kr.
151.3 m²
575.017 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík