Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1968
282,5 m²
9 herb.
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Hafnarbraut 8, Neskaupstað.
Skemmtilegt og einstaklega rúmgott einbýlishús með fallegu útsýni, stórum svölum og um 60 fm aukaíbúð. Eignin er samkvæmt skráningu 282,5 fm og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir stórar fjölskyldur eða fólk sem vilja hafa möguleika á leigutekjum.
Á miðhæð hússins er björt og rúmgóð aðalíbúð með forstofu, eldhúsi, geymslu og rúmgóðri borðstofu og stofu með stórum útsýnisgluggum. Mikið geymslupláss er í eldhúsinu sem er skemmtilega hannað með eyju / morgunverðarbar sem vísar út í alrýmið. Inn af forstofu er löng geymsla sem liggur að bakdyrum hússins, þar sem byggt hefur verið skjól við innganginn. Aukaíbú er á miðhæðinni, með sérinngangi en jafnframt er innangengt svo hægt er að stjórna aðgengi eftir hentisemi. Hún skiptist í rúmgóða stofu með fallegu útsýni, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og hentar því vel til útleigu, eða fyrir fjölskyldumeðlimi og gesti.
Á efstu hæð eru fjögur svefnherbergi, þar af þrjú vel rúmgóð, ásamt baðherbergi með sturtuklefa og notalegri sólstofu sem eykur enn frekar nýtingarmöguleika hæðarinnar. Úr einu svefnherbergjanna eru dyr út á svalirnar og mynda þær skemmtilega framlengingu á íbúðarrýminu yfir sumartímann. Frábært útýni er af svölunum.
Á jarðhæð er rúmgóður bílskúr með bæði innkeyrsluhurð og gönguhurð og góðu aðgengi að lagnarými.
Á lóðinni er sögufrægur skúr, þar sem fyrsta vélaverkstæðis Austurlands var staðsett. Sérstakt einkenni skúrsins er V-laga veggurinn sem snýr upp í hlíðina. Endurgerð af húsinu er varðveitt á safni í Neskaupstað. Skúrinn nýtist í dag sem geymsla eða vinnuaðstaða.
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum. Varmadæla hefur verið sett upp í húsinu sem hefur dregið verulega úr hitakostnaði og gerir rekstur eignarinnar hagkvæmari en áður. Þá hefur verið drenað við húsið, húsið málað að utan sem innan og ráðist hefur verið í umfangsmiklar endurbætur á raf- og pípulögnum.
Hér er um að ræða mjög rúmgott húsnæði með margskonar notkunarmöguleika, fallegt útsýni, tekjumöguleikar og áhugaverð staðarsaga fara saman.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. okt. 2020
29.550.000 kr.
33.000.000 kr.
282.5 m²
116.814 kr.
24. sep. 2019
28.600.000 kr.
10.000.000 kr.
282.5 m²
35.398 kr.
22. ágú. 2016
31.700.000 kr.
15.600.000 kr.
360.8 m²
43.237 kr.
8. jan. 2009
25.314.000 kr.
14.300.000 kr.
360.8 m²
39.634 kr.
23. maí. 2006
20.937.000 kr.
12.500.000 kr.
360.8 m²
34.645 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026