Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Uglugata 38

270 Mosfellsbær

87.900.000 kr.

834.758 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2331354

Fasteignamat

75.400.000 kr.

Brunabótamat

68.420.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
105,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

 ** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun  -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **   

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með afgirtum timburpalli til suðurs, sérmerktu bílastæði í lokaðri bílageymslu og góðu aðgengi um upphitaða gangstétt af sameiginlegu bílastæði. Íbúðin er björt og opin með gluggum á þrenna vegu og er eldhús búið vandaðri HTH innréttingu með granít stein á borðum. Sérgeymsla er í sameign í kjallara og gengur lyfta úr kjallaranum upp allar hæðri eignarinnar. Stutt er í skóla, leikskóla, göngu- og hjólastíga og ósnortna náttúru. 
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.

 Eignin er skráð 105,3 m2 þar af íbúð 99,6 m2 og geymsla 5,7 m2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er opin og björt með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóran afgirtan timburpall til suðurs með fallegu útsýni.
Eldhús er opið inn í stofu með fallegri hvítri HTH innréttingu og stórri eyju, granít steinn er á borðum. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, vínkælir, helluborð, innbyggður loftháfur og vaskur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott herbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu með handlaug, walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. 
Þvottahús er með hillum og flísum á gólfi. Opnanlegur gluggi er á þvottahúsi.
Geymsla er í kjallara, skráð 5,7 m2.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu merkt B01 fylgir eigninni. Búið er að setja hleðslustöð frá ON við stæðið. Einnig eru sameiginleg bílastæði fyrir framan innganga íbúða þar sem gangstétt við bílastæði og aðkeyrsla er upphituð.
Eigninni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Verð kr. 87.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. jan. 2020
36.250.000 kr.
54.000.000 kr.
105.3 m²
512.821 kr.
5. apr. 2019
18.350.000 kr.
49.900.000 kr.
105.3 m²
473.884 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ