Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Björnsson
Vista
raðhús

Borgarrimi 13C

806 Selfoss

57.900.000 kr.

556.731 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2534190

Fasteignamat

50.300.000 kr.

Brunabótamat

58.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
104 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Laus strax

Lýsing

LÓB fasteignir kynnir í einkasölu eignina Borgarrimi 13c, Reykholti. Vel skipulögð endabúð í nýlega byggðu þriggja íbúða raðhúsi í Reykholti. Íbúðin er 104m2  að stærð með fjögur herbergi, þvottahús og baðherbergi. Eignin er fullbúin að innan og utan og er tilbúin til afhendingar við undirritun kaupsamnings. Möguleiki að fá hlutdeildarlán til þess að fjármagna kaup á þessari íbúð.

Um er að ræða 104m2 endaíbúð í 3 íbúða raðhúsi í Reykholti. Nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer F2534190 ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign F2534190, birt stærð 104m2. Eignin stendur á leigulóð.

Að utan er eignin klædd með grárri láréttri, viðhaldslausri, bárujárnsklæðningu og gluggalistum úr  svörtu áli. Að innan er eignin fullbúin með gólfefnum og innréttingum frá Parka. Möl í bílaplani, meðfram gafli hússins að palli. Lóð er þökulögð og stór timburverönd fyrir aftan hús. Gólfefni er ljóst harðparket í öllum rýmum nema votrýmum en í þvottahúsi og baðherbergi eru gráar flísar á gólfi og gráar flísar í walk-in sturtuklefa á baðherbergi. Baðherbergisinnrétting með spegli frá Parka, walk-in sturta og upphengt salerni. Loftræsting í eigninni.

Að innan skiptist eignin í anddyri, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og eldhús og stofu í einu alrými. Útgegnt í garð úr stofunni. Fataskápar í svefnherbergjum og anddyri. Hljóðvistardúkur í lofti með innfelldri led lýsingu. Hiti í gólfi. Í eldhúsi er fullbúin eldhúsinnrétting frá Parka, með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, ofni og spanhelluborði á eldhúseyju. Gert ráð fyrir sætum fyrir 3-4 við eldhúseyjuna.

                                                                                     *** Eignin er laus við kaupsamning ***  *** Möguleiki á hlutdeildarláni ***
 

Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone