Lýsing
Aldir Fasteignir og Ragnar Þorgeirsson löggiltur fasteignasali (s. 774 7373 / ragnar@aldirfasteignir.is) kynna góða 4-5 herbergja íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi í Ásakór. Hún er 127,8 fm, vel skipulögð og telur stofu og eldhús í opnu rými, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús sem er innan íbúðar. Sérgeymsla 7,8 fm. og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Stórar suðursvalir gefa eigninni aukið gildi.
Komið er að íbúðinni innst á svalagangi. Innaf snyrtilegri forstofu, með fataskáp sem nær upp í loft og flísar á gólfi, er bjart alrými; Eldhús með góðri viðar innréttingu og stofurýmið ákaflega rúmgott og bjart, góður suðurgluggi og stórar svalir.
Hjónaherbergið er rúmgott með miklu skápaplássi. Tvö góð barnaherbergi eru i íbúðinni, með góðum skápum. Gengt forstofu er 4. herbergið, sem samkv. teikningu er borðkrókur en rýmið er skemmtilega nýtt á þennan hátt og lokað með rennihurð.
Baðherbergið er vel búið, flísalagt í hólf og gólf, þar er lítil innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, baðkar og sturtuklefi. Þvottahús er við hliðina á baðherberginu.
Viðarparket er á öllum gólfum nema forstofu, baðherbergi og þvottahúsi en þar eru flísar.
Björt og falleg eign og ákaflega heppileg fyrir barnafjölskyldu. Húsið virðist njóta góðs viðhalds og stendur við grænt svæði. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og þjónustu. Njóta má útiveru og gönguleiða um Guðmundarlund, Heiðmörk, við Elliðavatn og aðrar náttúruperlur.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða ragnar@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.