Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Sigurðsson
Þorsteinn Magnússon
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1964
svg
151,3 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Árborgir Fasteignasala s: 482-4800 kynnir í einkasölu :
Mjög smekkleg útsýnisíbúð á góðum stað miðsvæðis á Selfossi.
Húsið er staðsteypt, klætt að utan með sléttri álklæðningu, bárujárn er á þaki. Gluggar eru ál/tré. Byggingarár hússins er skráð 1964 en árið 2007 var byggt ofan á húsið og er íbúðin því byggð 2007.
Eignin er alls 151,3m2 að stærð og er sérbyggður bílskúr 34m2 þar af. Íbúðin sem er á tveim hæðum skiptist þannig að á aðalhæð er anddyri , baðherbergi , rúmgott herbergi m/ útg. á franskar svalir, stofa/borðstofa og eldhús í opnu rými auk geymslu sem er undir stiga. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi og hol auk baðherbergis sem er innaf öðru svefnherberginu. Útgengt er úr því út á mjög stórar svalir sem snúa til suðurs. Geymsla er í sameign í kjallara, auk þess sameiginlegt þvottahús. Bílskúr er innréttaður sem stúdíóíbúð og er hann í útleigu.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Forstofa er parketlögð og þar er fataskápur.
Gestasnyrting er flísalögð bæði gólf og hluti veggja en þar er snyrtileg innrétting og gólfsturta.
Svefnherbergi er mjög rúmgott, parket er á gólfi og þar er stór fataskápur.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í rúmgóðu alrými, parket er á gólfi. Sérsmíðuð innrétting er í eldhúsi og er borðplata úr steini.
Þvottahús er undir stiga upp á efri hæð.
Efri hæð er töluvert undir súð og því eru nýtanlegir fermetrar töluvert fleiri en skráðir eru.
Hol er parketlagt.
Herbergin eru bæði rúmgóð og er parket á gólfi. Fataskápur er í minna herberginu en í því stærra er útgengt á um 55m2 þaksvalir með fallegu útsýni. Heitur pottur er á svölunum.
Baðherbergi er innaf stærra herberginu, flísar eru á gólfi og veggjum að hluta en þar er baðkar og snyrtileg innrétting. 
Bílskúr er byggður árið 1966, klæddur að utan 2007 og innréttaður sem stúdíóíbúð eftir það. Skúrinn er í útleigu og gefur fínar leigutekjur.
Bílastæði framan við skúrinn er í séreign. Lóðin er öll malbikuð og snyrtileg.
Í heildina er  um að ræða bjarta og mjög skemmtilega útsýnisíbúð með einstökum þaksvölum á frábærum stað miðsvæðis á Selfossi.  

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

 

 
 
 

Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. feb. 2013
18.850.000 kr.
17.200.000 kr.
151.3 m²
113.681 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone