Upplýsingar
Byggt 2026
89,5 m²
4 herb.
3 svefnh.
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Lýsing
Lautargata 1, 210 Garðabær
Um er að ræða glæsilega og vel skipulagða 4 herbergja íbúð á eftirsóttum stað í Urriðaholti í Garðabæ. Eignin er skráð 89,5 fm, auk tveggja rúmgóðra sérgeymslna í sameign, en önnur þeirra er ekki innifalin í skráðri fermetratölu eignarinnar. Er eignin því í raun stærri en skráð fermetratala gefur til kynna.
Íbúðin er staðsett framarlega í hverfinu og nýtur því einstaklega góðs aðgengis inn í og út úr hverfinu. Húsið snýr vel gagnvart sólu og njóta rúmgóðar svalir eignarinnar þess til fulls, sem skapar frábæra aðstöðu til útivistar og samveru.
Nánari lýsing:
Forstofa með góðum fataskáp. Bjart og fallegt alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Eldhúsið er vandað með góðu skápa- og vinnuplássi, innréttingu frá Vok3 og fylgja bæði uppþvottavél og ísskápur með eigninni. Íbúðin skiptist að öðru leyti í tvö góð barnaherbergi með fataskápum og rúmgott hjónaherbergi með fataskáp. Baðherbergið er snyrtilegt og vel hannað með þvottaaðstöðu, góðu plássi fyrir bæði þvottavél og þurrkara, „walk-in“ sturtu með innbyggðum blöndunartækjum, fallegri innréttingu og glugga með opnanlegu fagi.
Í sameign fylgja tvær sérmerktar geymslur auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.
Hér er um að ræða einstaklega snyrtilega og vel búna eign á vinsælum stað í Urriðaholti þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, útivistarsvæði og samgöngur. Eign sem sannarlega er vert að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is