Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Ólafía Ólafsdóttir
Hulda Ósk Baldvinsdóttir
Díana Arnfjörð
Vista
fjölbýlishús

Nýhöfn 5

210 Garðabær

159.900.000 kr.

893.296 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2291599

Fasteignamat

122.450.000 kr.

Brunabótamat

88.220.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
179 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Bòkið skoðun:
Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali sími 8457445 og netfang gudrun@logheimili.is, kynnir í einkasölu: 
Stórglæsileg og björt lúxus endaíbúð með óskertu sjávarútsýni og bílskúr í fallegu og vönduðu lyftuhúsi í Sjálandi í Garðabæ. Íbúðin er á 2.hæð og aðeins eru þrjár íbúðir í stigaganginum, ein á hverri hæð. Góður bílskúr er á jarðhæð.  Innangengt úr skúr í geymslu í og stigagang.
Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt. Tvennar svalir eru á íbúðinni, einar litlar útsýnissvalir sem snúa í norðaustur yfir sjóinn með útsýni yfir að Esjunni, hinar eru mjög stórar yfirbyggðar, skráðar 20fm og snúa í suðvestur með útsýni út á sjó og útsýni á Snæfellsjökulinn á milli húsana til norðvesturs.  
Almenn lýsing eignar:  Gengið er inn í húsið á norðurgafli.  Lyftuhús.  Bílskúrar fyrir framan hús á jarðhæð.  Stæði fyrir framan bílskúr fylgir íbúðinni.   Aðeins þrjár íbúðir í stigahúsi og aðeins er ein íbúð á hæð.  Lyfta gengur á allar hæðir.  Húsið hefur fengið mjög gott viðhald.
Nánari lýsing íbúðar:
Forstofa: 
Komið er inn í forstofu með þreföldum eikarfataskáp sem nær upp í loft. Gegnheilt amerískt hnotuparket er á gólfi af vönduðustu gerð, mattlakkað. Innfelld halogen lýsing er í lofti.
Alrými/Borðstofa/Eldhús: Innaf forstofunni er mjög stór og rúmgóð borðstofa á hægri hönd. Borðstofan er á milli eldhússins annarsvegar og setustofunar hinsvegar. Mikið veggpláss er í rýminu.  Opið inn í eldhús.  Eldhús: Eldhúsið er rúmgott með fallegri ljósri viðarinnréttingu.   Eldhústæki eru vönduð frá Miele. Mikið skápapláss er í innréttingunni. Efri og neðri skápar eru á einn vegg þar sem ofninn er í vinnuhæð og á hinn vegginn eru neðri skápar og fallegur panoramagluggi þar fyrir ofan með útsýni út á sjóinn og Snæfellsjökul. Svört granítborðplata er á eldhúsbekkjum. Gluggar eru á tvo vegu í rýminu sem gerir eldhúsið sérlega bjart. Innfelld halogen lýsing er í lofti.
Yfirbyggðar svalir:  Útfrá eldhúsinu er gengið út á mjög stórar og rúmgóðar yfirbyggðar svalir sem snúa í suður, vestur og norðvestur. Svalirnar eru flísalagðar og þær njóta bæði mikillar sólar og einnig fallegs útsýnis. 
Stofa:  Frá borðstofunni er opið niður í stofu.  Gengið er niður eitt þrep  sem setur sérlega fallegan svip á íbúðina. Aukin lofthæð er í stofurýminu. Fallegt glerhandrið skilur á milli borðstofu og setustofu.  Stofan er stór og glæsileg með gegnheilu hnotuparketi á gólfi. Gluggarnir eru stórir og skarta þeir glæsilegu útsýni út á sjóinn í áttina að Arnarnesi og að Esju. Litlar svalir eru út frá stofunni út í áttina að sjónum. Innfelld halogen lýsing er í lofti.
Herbergi / sjónvarpsherbergi: Innaf stofunni er mjög rúmgott aukaherbergi/sjónvarpsherbergi. Gengið er upp eitt þrep að herberginu. Gegnheilt hnotuparket er á gólfi. 
Baðherbergi/Þvottur:  Baðherbergið hefur að mestu verið endurnýjað fyrir nokkrum mánuðum er flísalagt í hólf og gólf með ljósum fallegum flísum. Stór sturta með glerhurðum er í horni baðherbergisins. Hvít innrétting er undir vaski og við hlið spegil. Steinn er á borði og vaskurinn er undirfelldur. Spegillinn fyrir ofan vaskinn er stór með góðri lýsingu. Salernið er upphengt og vatnskassi  innfelldur í vegg. Handklæðaofn er á vegg. Þvottaaðstaða í lokuðum skáp:  Á bak við hurðina eru tvær stórar spegla rennihurðir sem ganga veggja á milli. Inn í speglaskápnum er mjög gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara, mikið af hillum og hirsluplássi og góður kústaskápur.
Hjónaherbergi + fataherbergi:  Hjónaherbergið er mjög stórt og rúmgott með gegnheilu hnotuparketi á gólfi. Vel útbúið fataherbergi er innaf hjónaherberginu. Sandblásin glerrennihurð skilur á milli hjónaherbergisins og fataherbergisins.
Geymsla:  Á jarðhæðinni er geymslan sem fylgir íbúðinni. Geymslan er 7.9 fm með góðum hillum. Innangengt er úr geymslunni inn í bílskúrinn.
Bílskúr: Sér lokaður bílskúr fylgir með íbúðinni. Bílskúrinn er mjög snyrtilegur með hillum, innréttingu og sjálfvirkum bílskúrshurðaopnara.  Bílastæði fyrir framan bílskúr.  Tengi fyrir rafhleðslu.  Vaskur/heitt og kalt vatn í bílskúr.

Útivistararperla:  Göngustígar, ylströnd i næsta nágrenni.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali
gudrun@logheimili.is
sími:  8457445



 

img
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lögheimili Eignamiðlun ehf
Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes
Lögheimili Eignamiðlun ehf

Lögheimili Eignamiðlun ehf

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes
img

Guðrún Hulda Ólafsdóttir

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. jún. 2020
104.450.000 kr.
82.100.000 kr.
10201 m²
8.048 kr.
19. nóv. 2007
3.650.000 kr.
43.000.000 kr.
157.6 m²
272.843 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lögheimili Eignamiðlun ehf

Lögheimili Eignamiðlun ehf

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes

Guðrún Hulda Ólafsdóttir

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes