Opið hús: Sólheimar 25, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 702. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 28. október 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Íbúðin er á 87,9 fm og er á 7. hæð. Henni fylgja 2 geymslur, önnur á hæðinni og hin í kjallara. Geymslurnar eru 2,7 fm og 2,6 fm. Íbúðin sjálf er 82,6 fm. Tvennar svalir, aðrar með svalalokun til suðurs og minni svalir til austurs. Íbúðin er björt og opin með nýlegu eldhúsi og tækjum. Gólfsíðir gluggar í stofu með glæsilegu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og til fjalla.
Nánari lýsing:
Forstofa/gangur: Með parketi á gólfi og innbyggðum tvöföldum fataskáp.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi, góðum fataskáp og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Rúmgott með parketi á gólfi, góðum skápum, glugga til austur og útgengi á svalir.
Stofa: Er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Gólfsíðir gluggar til suðurs með glæsilegu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið til suðurs og til fjalla. Stofan rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengt á yfirbyggðar svalir.
Eldhús: Mjög stílhreint og endurnýjað nýlega. Parket á gólfi. Flísar eru á milli efri og neðri skápa, bökunarofn er í vinnuhæð. Eigninni fylgir uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Sturtuklefi, innrétting með handlaug og upphengt salerni. Gluggi til austurs.
Þvottaherbergi og þurrkherbergi: Er sameiginlegt á 12. hæð hússins (efstu) með epoxy á gólfi. Þrjár þvottavélar, þurrkari, strauvél og vinnuborð. Bjart rými með glæsilegu útsýni.
Bílastæði er sameiginlegt. Hleðslustöðvar eru á bílastæði.
Sameiginlegar svalir: Eru staðsettar á þaki hússins. Glæsilegt útsýni yfir höfuðborgarsvæðið, út á sundin og til fjalla.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í kjallara. Snyrtileg með epoxy gólfi og gluggum til suðurs og austurs. Útgengi á lóð.
Húsvarðaríbúð: Er staðsett í húsinu og er í eigu húsfélagsins.
Húsvarðarrými: Er staðsett í kjallara og er notað sem fundarherbergi eða vinnusvæði fyrir húsvörð.
Um er að ræða virkilega sjarmerandi fjölbýli, byggt árið 1962, sem hefur fengið lof fyrir fallega hönnun. Arkitekt hússins er Guðmundur Kr. Guðmundsson. Í húsinu eru 44 íbúðir á 11 hæðum, auk kjallara og þakhæðar (12. hæð).
Öll sameign hússins er til mikillar fyrirmyndar og viðhald á húsinu gott. Drenlagnir voru endurnýjaðar 2018, skólplagnir voru fóðraðar 2017 og múrviðgerðir og málun hefur verið sinnt í gegnum árin. Nýlega voru settar rafdrifnar hurðir í anddyri, þá var þak og þakkantur endurnýjað árið 2024. Skipt var um handrið á svölum árið 2022.
Húsvörður er í húsinu sem býr í húsvarðaríbúðinni. Tvær lyftur eru í húsinu. Nýlegur myndavéladyrasími er í húsinu. Myndavélaeftirlitskerfi er í sameign hússins.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.