Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
svg
350 m²
svg
5 herb.
svg
5 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*STÓRGLÆSILEG NÝTT EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ Í GRÓNU HVERFI* *ÖRSTUTT Á STRÖNDINA OG Í LA ZENIA BOULEVARD*


EINSTÖK STAÐSETNING - FRÁBÆR HÖNNUN
Einstaklega fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með góðum garði og einkasundlaug á hinu vinsæla La Zenia svæði, um 50 mín akstur suður frá Alicante. Húsið er vel skipulagt með fjórum svefnherbergjum og fjórum baðherbergjum auk gestasnyrtingar. Tvöfaldur bílskúr í kjallara. Glæsileg hönnun og í engu sparað við val á efni og innréttingum. 

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869

Nánari lýsing:
Á neðri hæð er gengið inn forstofu og þaðan beint af augum inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og glæsilegt eldhús. Inn af eldhúsi er geymsla/þvottahús. Hátt er til lofts í stofu og stórir gluggar hleypa inn náttúrulegri birtu sem gefur stofunni sérlega rúmgott og bjart yfirbragð. Ef gengið er til hægri inn úr forstofu er að finna stigahús upp á aðra hæð og álmu með gestasalerni og rúmgóðu svefnherbergi. Inn af svefnherbergi er fataherbergi og sér baðherbergi.

Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi og er hvert þeirra með sér baðherbergi. Í einu þeirra er fataherbergi en í hinum tveimur er rúmgóðir innbyggðir fataskápar. 

Gólfhiti er í eigninni og hitastýring í hverju herbergi fyrir sig. 

Í kjallara er bílskúr með plássi fyrir tvo bíla.

Góður garður er kringum húsið með einkasundlaug og frábærri sólbaðsaðstöðu. Útieldhús, úti-gestasnyrting og rafstýrð pergola fylgja með í kaupunum. 

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Las Colinas. Göngufæri er niður á ströndina í La Zenia og Cabo Roig. Einnig er La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin í þægilegu göngufæri. Um 50 mín. akstursleið frá flugvellinum í Alicante. Göngufæri í gott úrval veitingastaða og verslana.

Hér er um að ræða einstaka lúxuseign á einu vinsælasta svæði Costa Blanca. Hverfið er gróið, örstutt er á ströndina og fjöldi veitingastaða og verslana er allt um kring. 

Verð 1.600.000.000 Evrur (ISK 220.800.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Gengi 1Evra=138ISK.


Aðeins er um EITT hús að ræða og er það tilbúið til afhendingar í lok árs 2026.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: einbýli, sér garður, einkasundlaug, bílskúr, 
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,

 

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.