Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
fjölbýlishús

Breiðamörk 25

810 Hveragerði

57.900.000 kr.

741.357 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2273742

Fasteignamat

52.650.000 kr.

Brunabótamat

59.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
78,1 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Ath áður auglýst opið hús fellur niður. 

Helgafell og Jón G. Sandholt
kynna fallega og töluvert endurnýjaða 78,1 m², tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi við Breiðamörk 25a í Hveragerði. Eignin telur forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, þvottahús og sérgeymslu. Úr stofu er útgengt á 14,4 m² suðvestursvalir með góðu útsýni.

Breiðamörk 25a er björt og rúmgóð íbúð sem hefur verið töluvert endurnýjuð. Meðal endurbóta má nefna endurnýjað baðherbergi með HTH innréttingu, uppfært eldhús með nýrri borðplötu og eldunartækjum ásamt HTH innréttingu í þvottahúsi. Nýtt parket er á gólfum að undanskildum votrýmum sem eru flísalögð. Íbúðinni fylgir 6,3 m² sérgeymsla á jarðhæð og er hún innifalin í heildarfermetrafjölda eignarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, sími 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is

Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi á 14,4 m² suðvestursvalir.
Eldhús er með viðarlitaðri innréttingu, endurnýjaðri borðplötu, vaski og blöndunartækjum ásamt endurnýjuðum ofni, helluborði og uppþvottavél.
Baðherbergi er endurnýjað með flísum á gólfi og veggjum, flísalagðri sturtu, upphengdu salerni og hvítri HTH innréttingu.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Þvottahús er með flísum á gólfi og HTH innréttingu.
Geymsla er 6,3 m² og staðsett á jarðhæð hússins með epoxý á gólfi.
Sameign: Lyfta er í húsinu ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu með epoxý á gólfi.

Húsið er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús, klætt að hluta með bárustáli. Þak er klætt tjörupappa og þakkantar með álplötum.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. feb. 2020
30.150.000 kr.
33.500.000 kr.
78.1 m²
428.937 kr.
9. maí. 2019
25.950.000 kr.
110.000.000 kr.
476.3 m²
230.947 kr.
3. nóv. 2015
15.250.000 kr.
104.600.000 kr.
596.8 m²
175.268 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík