Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Engjadalur 2

260 Reykjanesbær

63.500.000 kr.

542.735 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2288351

Fasteignamat

64.200.000 kr.

Brunabótamat

59.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
117 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 29. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Engjadalur 2, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 102. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 29. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna bjarta, vel skipulagða og virkilega snyrtilega 3ja herbergja íbúð við Engjadal 2, 260 Reykjanesbæ.

Eignin er 117 fm að stærð, með sérinngangi, tveimur svefnherbergjum, stórri forstofu, mjög góðu þvottahúsi/geymslu innan íbúðar, og henni fylgir bílskúr. 

Laus við kaupsamning. 

Nánari lýsing:
Forstofa með ljósum flísum á gólfi og góðum tvöföldum fataskáp.
Eldhús er opið og er með hvítri innréttingu, flísum á milli efri og neðri skápa, helluborði, bakaraofni og innbyggðri uppþvottavél. Góður gluggi er á eldhúsi. 
Stofan og borðstofan eru með eikarparketi á gólfi og þaðan er útgengt út á hellulagða verönd sem er sérafnotaflötur eignarinnar. Þar má byggja pall.
Bæði svefnherbergin eru parketlögð með góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt og með glugga, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofni og upphengdu klósetti. 
Þvottahús/geymsla er flísalögð, mjög rúmgott rými með flottri innréttingu og hillum.
Bílskúrinn er 31,4 fm, flísalagður með heitu og köldu vatni. Mjög snyrtilegur.

Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign hússins. 
Eignin er staðsett steinsnar frá Stapaskóla, en þar er sundlaug og íþróttahús. Á Fitjum er öll helsta þjónusta, s.s. verslun og veitingar. Stutt er út á Reykjanesbraut frá eigninni.  

Þetta er virkilega vel með farin eign sem hefur verið í eigu sama aðila frá því að hún var byggð. 
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Marta Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sunna fasteignasala
Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
img

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. jún. 2006
732.000 kr.
16.900.000 kr.
85.6 m²
197.430 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík