Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 54,9 m2 2ja herbergja íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi við Brautarholt 20. Eignin skiptist forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi og geymslu innan íbúðar með glugga. Í sameign er vagna- og hjólageymsla, fullbúið sameiginlegt þvottahús og fundarsalur. Húsið var byggt árið 1953 en hefur frá árinu 2020 verið endurbyggt að hluta og mikið endurnýjað. Markmið hönnunarinnar var að hún tæki mið af þéttingu byggðar innan borgamarka. Íbúðir og útisvæði taka mið af þessari þróun og úr varð skemmtileg blanda af vel staðsettum fjölbreyttum smáíbúðum.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, ofn, helluborð og vifta.
Stofa er í opnu björtu rými með eldhúsi. Úr stofu er gengið út á svalir í vesturátt.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt og með 'walk in' sturtu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu með skolvaski.
Geymsla er innan íbúðar með parketi á gólfi. Gluggi er á geymslu.
Sameign: Vagna- og hjólageymsla, fullbúið sameiginlegt þvottahús og fundarsalur.
Verð kr. 54.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.