Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Friðrik Einar Sigþórsson
Svala Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Ásatún 44 204

600 Akureyri

66.900.000 kr.

773.410 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2295151

Fasteignamat

60.550.000 kr.

Brunabótamat

51.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
86,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
Opið hús: 27. október 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Ásatún 44 204, 600 Akureyri, Íbúð merkt: 03 02 04. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 27. október 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

FS fasteignir – 571-9992

Ásatún 44 204, 600 Akureyri
Snyrtileg og vel skipulögð 86,5 m2 3ja-4ra herbergja endaíbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi með lyftu í Naustahverfi.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjú svefnherbergi, svalir og sérgeymslu á jarðhæð.

Nánari lýsing:
   - Forstofa: 
þar eru gráar flísar á gólfi, eikar fataskápur.
   - Svefnherbergi: eru með harðparketi á gólfum og hvítum fataskápum, bæði með opnanlega glugga til austurs. Annað herbergið er skráð sem geymsla á tekiningum.
   - Hjónaherbergi: er inn af stofu, þar er harðparket á gólfi og góður fataskápur, opnanlegur gluggi til suðvesturs.
   - Eldhús: í eldhúsi er tvílit L-laga eldhúsinnrétting úr ljósri eik með hvítum efri skápum. Bakaraofn í vinnuhæð, keramik helluborð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur sem getur fylgt með við sölu eignar.
   - Stofa: er í opnu rými með eldhúsi, þar er harðparket á gólfi, gengið er úr stofu út á opnar svalir til vesturs.
   - Baðherbergi: er með gráum flísum á gólfi og hvítum flísum á hluta veggja, ljós eikar innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.
   - Geymsla: í sameign á jarðhæð er 2,1 m2 sérgeymsla.

Annað:
   - Ljósleiðari tengdur.
   - Leikvöllur á lóð vestan við húsið.
   - Gólfhiti er í allri íbúðinni.
   - Veggir og loft nýlega málað, fyrir utan inni á baðherbergi.
   - Sérsniðaðar rúllugardínur frá Vouge fylgja með.
   - Kubbaljós í alrými fylgja með við sölu.
   - Gott útsýni er úr íbúðinni yfir Súlur og út fjörðinn.
   - Örstutt í leik- og grunnskóla, matvöruverslun og golfvöll.

Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.

img
Friðrik Einar Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
FS Fasteignir ehf.
Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri
FS Fasteignir ehf.

FS Fasteignir ehf.

Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri
phone
img

Friðrik Einar Sigþórsson

Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. feb. 2017
2.180.000 kr.
31.500.000 kr.
86.5 m²
364.162 kr.
19. jún. 2008
1.165.000 kr.
712.255.000 kr.
13508.4 m²
52.727 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
FS Fasteignir ehf.

FS Fasteignir ehf.

Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri
phone

Friðrik Einar Sigþórsson

Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri