Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
svg

141

svg

80  Skoðendur

svg

Skráð  23. okt. 2026

fjölbýlishús

Hafnargata 23

230 Reykjanesbær

94.900.000 kr.

520.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2281767

Fasteignamat

74.200.000 kr.

Brunabótamat

110.770.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1975
svg
182,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Lyfta

Lýsing

Eignakaup fasteignasala kynnir til sölu íbúð að Hafnargötu 23, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 228-1767 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 182.5 fm. Að auki fylgja 2 bílastæði í bílakjallara.

Mjög falleg nýgerð íbúð á 1.hæð ásamt góðri geymslu í kjallara með tveimur bílastæðum í bílageymslu. Eignin hefur öll verið endunýjuð á sl. 2 árum. Allar innréttingar, hurðar og öll tæki eru ný. Allir milliveggir eru nýjir og aðrir veggir allir pússaðir og málaðir. Eignin telst vera samtals 182,5m2, henni fylgir góð geymsla ásamt tveimur rúmgóðum bílastæðum í bílageymslu. Íbúðin er á 1 hæð og skiptist í forstofu, eldhús, gott alrými þar sem er stofa og borðstofa, svefnherbergi og stórt baðherbergi. Einnig er mjög góð geymsla innaf íbúð. Þriggja metra lofthæð er í öllum rýmum og öll lýsing er öll ný. Íbúðin er björt opin og falleg.
Nánari lýsing: Forstofa: Flísar á gólfi og stór og góður nýr fataskápur. Eldhús: Flísar á gólfi, ný stór og mikil þriggja metra há innrétting með miklu skápa plássi. Ný góð tæki, 2 ofnar. Nýr innbyggður ísskápur og ný uppþvottavél. Stofa / Borðstofa: Rúmgóð stofa og borðstofa í sama rými og eldhús. Þriggja metra lofthæð og stórir gluggar með miklu útsýni. Flísar á gólfi. Baðherbergi : Mjög fallegt flísalagt baðherbergi með nýrri fallegri innréttingu og nýjum skáp. Nýtt baðkar og ný sturta, ásamt nýrri innréttingu með skápum og stæðum fyrir nýja þvottavél og nýjan þurrkara er fylgja með eigninni. Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með flísum á gólfi og nýjum afar rúmgóðum og stórum fataskápum. Geymsla: Stór geymsla inn af bílageymslu einnig með inngang úr geymslugangi. Í geymslu er tengt fyrir þvottavél og þurrkara. Wc og sturta. Bílastæði: Tvö góð stæði í bílgeymslu. Góð lofthæð 3 til 3,2 m. í allri eigninni. Allar gardínur og lýsingar eru fjarstýrðar.
Áhrifamikið 180 gráðu panorama útsýni er yfir Faxaflóann úr stofu er nær yfir alla Keflavíkina, Njarðvík, höfuðborgina, Hafnarfjall og yfir bergið niður að Gróf.
Sameign hússins er snyrtileg og vel við haldið. Lyfta er í húsinu. Í eigninni er nettengdur mynddyrasími.

Staðsetning:
Frábær staðsetning í Keflavík þar sem stutt er í þjónustu, veitingastaði, hafnarsvæði, gönguleiðir og alla helstu þjónustu. Eignin nýtur jafnframt glæsilegs 180° sjávarútsýnis. Verslanir og veitingastaðir, Bónus ofl finnst allt í nágreni íbúðarinnar. Um er að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign á þessum frábæra stað í miðbæ Reykjanesbæjar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 774-4500 eða jakob@jjl.is

Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 55.000 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Eignakaup

Hafnargötu 23, 230 Reykjanesbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. jan. 2025
68.750.000 kr.
93.700.000 kr.
10102 m²
9.275 kr.
20. sep. 2022
31.100.000 kr.
47.000.000 kr.
237.7 m²
197.728 kr.
10. ágú. 2021
30.400.000 kr.
33.000.000 kr.
10102 m²
3.267 kr.
17. feb. 2015
20.450.000 kr.
22.000.000 kr.
237.7 m²
92.554 kr.
5. sep. 2007
17.625.000 kr.
33.200.000 kr.
10102 m²
3.286 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Eignakaup

Hafnargötu 23, 230 Reykjanesbæ