Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðný Ósk Sigurgeirsdóttir
Vista
raðhús

Stuðlaberg 98

221 Hafnarfjörður

124.900.000 kr.

735.138 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2079592

Fasteignamat

121.350.000 kr.

Brunabótamat

92.420.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
169,9 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 3. nóvember 2026 kl. 16:15 til 17:00

Opið hús: Stuðlaberg 98, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. nóvember 2026 milli kl. 16:15 og kl. 17:00.

Lýsing

Stuðlaberg 98 - Setberginu Hafnarfirði 

OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 3.NÓVEMBER FRÁ KL 16:15-17:00
Vinsamlegast staðfestið komu á opna húsið á gudny@stofanfasteignir.is eða í s: 866 7070

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjart og fallegt endaraðhús með bílskúr við Stuðlaberg 98 í Setberginu.
Eignin er skráð samtals 169,9 fm skv. HMS, þar af er bílskúr 18 fm. 
*Seljendur skoða skipti á minni eign í Setberginu*

Nánari upplýsingar hjá Guðný Ósk í síma 866 7070 eða á gudny@stofanfasteignir.is


Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, gestsalerni, hol/gang, eldhús og stofu (neðri hæð), á efri hæð eru 3 herbergi, sjónvarsphol, baðherbergi og þvottahús - svo er sérstæður bílskúr.
 
  • Endaraðhús með afgirtum grónum garði
  • Bílskúr
  • 4 svefnherbergi
  • Nýtt eldhús og tæki
  • Rafmagn í eldhúsi endurnýjað (sértafla í eldhúsi) ásamt eru nýjar neysluvatnslagnir í eldhúsi
  • Ný gólfefni á gangi, eldhúsi og stofu á neðri hæð, sjónvarpsholi og herbergjum efri hæðar
  • Nýir þrýstijafnarar í hitagrind 
  • Húsið múrviðgert og málað að utan, gluggar og þakkantur málað 2025

Neðri hæð
Komið er inn í forstofu, inn af forstofu er herbergi og gestasalerni. Búið er að hreinsa út úr þessum rýmum og þarf að standsetja.
Gangur / hol með harðparketi á gólfi. 
Eldhús er opið og bjart með nýrri innréttingu og tækjum. Bakarofn í vinnuhæð, helluborð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél, harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er í garðinn frá stofunni.

Gengið er upp parketlagðan stiga á efri hæð.
Rúmgott sjónvarpshol með harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi. Útgengt er úr herberginu á svalir.
Tvö rúmgóð barnaherbergi, bæði með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting, salerni, baðkar og sturta.
Þvottahús á sömu hæð sem er með skolvask og flísum á gólfi.
Geymsluloft er yfir hluta efri hæðar.
Sérstæður bílskúr við húsið.
Stór og gróinn er við húsið, hellulagt fyrir framan og aftan hús.

Það sem hefur verið gert:
- Húsið múrviðgert og málað að utan 2025
- Gluggar og þakkantur málaðir 2025
- Skipt um eldhúsinnréttingu og tæki 2025. Á eftir að klára frágang í kringum innréttingu. 
- Sett var sér rafmagnstafla í eldhús 2025
- Nýtt harðparket 2025
- Nýjir þrýstijafnarar í hitagrind 2025
- Ofnar yfirfarnir 2025/2026 (Skipt um pakkdósir og krana þar sem þarf)
- Nýtt neysluvatn í eldhús, nýjar lagnir lagðar upp á efri hæð, tilbúnar fyrir baðherbergi.

Þetta er frábært fjölskylduhús á góðum stað í Setberginu í Hafnarfirði þar sem stutt er í flesta þjónustu, Kaplakriki í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfirði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. apr. 2025
108.550.000 kr.
108.000.000 kr.
10101 m²
10.692 kr.
21. júl. 2014
37.150.000 kr.
42.900.000 kr.
169.9 m²
252.501 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfirði