Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
einbýlishús

Hjallabraut 14

815 Þorlákshöfn

87.900.000 kr.

429.199 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2212390

Fasteignamat

76.800.000 kr.

Brunabótamat

101.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1968
svg
204,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Hjallabraut 14, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 4ra herbergja einbýlishús með stórum bílskúr. Birt stærð eignar er 204,8 fm og þar af er íbúðahluti 154,8 fm. og bílskúr 50 fm. Eignin er einstaklega vel staðsett í grónu hverfi í hjarta Þorlákshafnar með fallegum skjólgóðum garði með suðvestur sólpall framan við húsið og sólpall á baklóð með heitum potti. 

Skipulag eignar:  Eignin er skráð sem 4ra herbergja einbýlishús og skiptist í anddyri, hol, rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús með búri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gang, þvottahús og geymslu. Auk þess eru tvö herbergi og lítil geymsla í rými sem áður var sólskáli sem búið er að einangra og klæða. Sérstæður bílskúr er 50 fm að stærð.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing eignar: 
Anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu.
Stofa / borðstofa: Stór og björt stofa / borðstofa, parketi á gólfi. 
Hol: Parket á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað 2025: Ný eldhúsinnrétting frá HTH, ný tæki þ.e. innbyggður ísskápur og frystir, innbyggð uppþvottavél, bakarofn og örbylgjuofn, spanhelluborð, fiboplötur milli skápa, borðkrókur, parket á gólfi. 
Gangur: Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með með góðum innfeldum fataskápum, parket á gólfi
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, hvítur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, innfeldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi 4: Rúmgott herbergi sem staðsett í rými sem áður var sólskáli sem búið er að einangra og klæða, útgengi út á baklóð, flísar á gólfi.
Herbergi 5: Gott herbergi sem staðsett í rými sem áður var sólskáli sem búið er að einangra og klæða, flísar á gólfi. 
Geymsla: Lítil geymsla sem staðsett í rými sem áður var sólskáli sem búið er að einangra og klæða, flísar á gólfi. 
Baðherbergi: Með góðri  innréttingu og spegill með ljósi, baðker með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf,
Búr: Inna af eldhús, hillur, flísar á gólfi. 
Þvottahús og geymsla: Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús og inn af því er geymsla, hvítir skápar, útgengi út í innkeyrslu, flísar á gólfi.
Bílskúr: Stærð 50 fm, heitt og kalt vatn, hiti, bílskúrshurðaopnari, grunn gryfja, málað gólf. 

Húsið: Húsið er steinsteypt og byggt árið 1968 og bílskúrinn er byggður 1971.
Lóð: Falleg 693,8 fm. lóð. Að framan er steypt innkeyrsla, steypt stétt að húsi og suðvestur sólpallur, á baklóð er sólpallur með heitum potti (rafmagnspottur).
Staðsetning: Smellið hér.

Að sögn seljenda hafa eftirfarandi endurbætur verið framkvæmdar:
Árið 2025:
* Eldhús endurnýjað með nýrri HTH-eldhúsinnréttingu og nýjum heimilistækjum.
* Skipt um glugga og gler í eldhúsi, stofu og svefnherbergjum.
* Ný loftklæðning og innfelld lýsing sett í hol, stofu, hjónaherbergi og eitt svefnherbergi.
* Skipt um þakjárn á bílskúr.
Aðrar endurbætur:
* Baðherbergi hefur verið endurnýjað.
* Miðstöð og miðstöðvarlagnir hafa verið endurnýjaðar í húsinu.

Hér er um að ræða einstaklega áhugaverða og vel staðsetta fjölskyldueign miðsvæðis í Þorlákshöfn, stutt í alla helstu þjónustu s.s. skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og verslanir. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. mar. 2018
24.800.000 kr.
29.000.000 kr.
204.8 m²
141.602 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík