Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Vista
fjölbýlishús

Mosagata 7

210 Garðabær

105.500.000 kr.

740.871 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2501873

Fasteignamat

101.400.000 kr.

Brunabótamat

85.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
142,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 28. október 2026 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Mosagata 7, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 28. október 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:  

MOSAGATA 7 URRIÐAHOLTI - 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ ÁSAMT BÍLSKÚR

Rúmgóð og vel staðsett endaíbúð með sérinngangi.  Íbúðinni fylgir bílskúr og geymsla í sameign. Afar mikið útsýni til suðvesturs.
Stutt er í skóla og leikskóla ásamt útvistarsvæði og gönguleiðum. 

Um er að ræða afar fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja 120 m2 endaíbúð (0201) þar af með 8,4 fm sérgeymslu í sameign auk 22,4 m2 bílskúr (til samans 142,4 m2) á Urriðaholtinu í Garðabæ. Örstutt er í skóla og leikskóla, útivistarsvæði og gönguleiðir. Stórbrotið útsýni! 
Forstofa, gangur, eldhús, baðherbergi, stofa, borðstofa, þrjú svefnherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr. Íbúðin er í góðu fjölbýlishúsi/lyftuhúsi  í botngötu. Fallegar innréttingar og vandað gólfefni.

Nánari lýsing eignar. 
Forstofa. Rúmgóð og lokuð forstofa. Gráleitar flísar á gólfi. Góður fataskápur. 
Hol og opið inn í stofu og eldhhús,  vandað vinylparket á gólfum. 
Eldhús. Fallegt og bjart eldhús með vandaðri innréttingu og tækjum,  eyja með spanhelluborði. 
Borðstofa. Björt og rúmgóð. 
Stofa. Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á yfirbyggðar svalir. 
Svalir. Stórar og yfirbyggðar 11,2 fm suðursvalir með stórfenglegu útsýni.
Svefnherbergi. Þrjú góð svefnherbergi með fataskápum og vinylparketi. 
Baðherbergi. Rúmgott og fallegt baðherbergi með flísum. Upphengt salerni, hvít  innrétting, handklæðaofn og baðkar með sturtu.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu og flísum á gólfi. 
Geymsla. Auk bílskúrs er 8,4 fm sérgeymsla í sameign. 
Bílskúrinn er 22,4 fm með rafmagnsopnara, tengi fyrrir rafhleðslustöð og milliloft sem nýtist vel. 

Eignin Mosagata 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-1873, birt stærð 142.4 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. júl. 2020
55.850.000 kr.
63.500.000 kr.
142.4 m²
445.927 kr.
11. des. 2019
55.850.000 kr.
63.000.000 kr.
142.4 m²
442.416 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone