Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Sólheimar 23

104 Reykjavík

81.500.000 kr.

756.030 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021541

Fasteignamat

78.950.000 kr.

Brunabótamat

54.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1961
svg
107,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Trausti fasteignasala og Viktoría R. Larsen löggiltur fasteignasali kynna til sölu rúmgóða og bjarta 4ra herbergja íbúð á 6. hæð með stórbrotnu útsýni í þrjár áttir. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús/geymslu innan íbúðar ásamt yfirbyggðar svalir. Þar að auki er lítil geymsla í kjallara.

***BÓKIÐ SKOÐUN***


Eigin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 107,8 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa: Rrúmgóð með fataskáp. Flísar á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með gluggum á tvo vegu og glæsilegu útsýni. Útgengi á góðar yfirbyggðar suður svalir. Parket á gólfi.
Borðstofa: Rúmgóð með stórum glugga og flottu útsýni. Búið að breyta í þriðja svefnherbergið. Parket á gólfi.
Eldhús: Með borðkrók, ljósri innréttingu, ofn í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Með sturtuklefa og opnanlegum glugga. Flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi I: Rúmgott með stórum fataskáp og gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgott, var áður borðstofa en léttur veggur hefur verið settur upp til að útbúa herbergi, auðvelt að afturkalla. Parket á gólfi.
Þvottahús/geymsla: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og gott geymslupláss. Auk þess er gott þvottahús og þurrkherbergi í kjallara sem og lítil geymsla.

Sameign hússins er afar snyrtileg og er húsvörður starfandi í húsinu. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi sem og hjóla- og vagnageymsla. Næg bílastæði eru á lóðinni og er búið að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. 

Húsið hefur fengið reglulegt og gott viðhald í gegnum árin.
Helstu endurbætur sem hefur verið farið í síðustu ár:
2017 -
Gluggar endurnýjaðir.
2022 - Skólp og dren lagfært. 
2024 - Ný lyfta.
2024 - Bílastæði endurbætt. 
2025 - Anddyri lagfært.

Frábær staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, skóla, leikskóla, bókasafn, útivistarsvæði í Laugardalnum o.fl

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Viktoría R. Larsen löggiltur fasteignasali í síma 6185741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Viktoría Rannveig Larsen
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Viktoría Rannveig Larsen

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Viktoría Rannveig Larsen

Vegmúla 4, 108 Reykjavík